Close

Svona gerum við

Námsefni

Geotagging/geocoding – staðarmerking

07 Jul Uncategorized | Athugasemdir
Ég hef verið að gera tilraunir með staðarmerkingu ljósmynda. Þetta er verulega spennandi nýjung sem vakið hefur mikla athygli upp á síðkastið.

Staðarmerking felur í sér að upplýsingar um staðsetningu eru skráðar sem lýsigögn (metadata) með viðkomandi efni. Staðarmerking felst yfirleitt í því að skrá landfræðilega staðsetningu sem lengdar- og breiddargráðu auk þess sem stundum er skráð hæð (altitude) og staðarnafn. (sjá wikipedia). Hægt er að staðarmerkja hvaða gögn sem er, s.s. vefi, skrár eða myndir.

Einstaklega skemmtilegt dæmi um staðarmerkingu gagna er staðarmerking ljósmynda sem hýstar eru á Flickr myndavefnum og síðan gerðar aðgengilegar á Netinu í gegnum Google Earth, Mappr (einungis USA) eða með öðrum leiðum. Geobloggers vefurinn er ágætur upphafspunktur fyrir þá sem vilja kynna sér þetta nánar.

Notendur Google Earth geta birt staðarmerktar ljósmyndir Flickr notenda með því að gera eftirfarandi:

  • Opna Google Earth
  • Velja Add > Network Link
  • Gefa tengingunni nafn í Name reitinn
  • Afrita eftirfarandi slóði í location reitinn:

    http://www.geobloggers.com/makeXML.cfm

  • Velja “After camera stops” í View based refresh
  • Staðfesta með því að smella á OK

Eftir að þetta hefur verið gert birtir Google Earth lista yfir þær 50 ljósmyndir sem hafa verið staðarmerktar og eru nálægt þeim stað sem verið er að skoða. Ljósmyndirnar birtast einnig á kortinu og hægt er að smella á þær og skoða nánar í vefskoðara. Á myndinni hér að neðan má sjá hvernig staðarmerkt ljósmynd birtist á Google Earth.

Google_earth_strandakirkja

Einfalt er að afla sér frekari upplýsinga um staðarmerkingu. Ég bendi hér á ágæta upphafspunkta.

Frekari upplýsingar um staðarmerkingu gagna:



Tengt efni

Skráðu athugasemd