Flýtiskipanir í Microsoft Word

Skrifað 11. July 2005
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég rakst á stutta leið til að kalla fram langan lista yfir lyklaborð-flýtiskipanir (keyboard shortcuts) í Microsoft Word ritvinnslunni.

Aðgerðin er eftirfarandi:

  • Ræstu Microsoft Word
  • Veldu Tools>Macro>Macros
  • Veldu “Word Commands” í “Macros in” felliseðlinum
  • Veldu ListCommands í listanum yfir skipanir (ath. hægt að smella á L lykilinn á lyklaborðinu til að flýta fyrir)
  • Smelltu á Run hnappinn
  • Hakaðu við “Current Menus and keyboard settings” í glugganum sem birtist

Ef allt er rétt gert birtir Word 9 blaðsíðna yfirlit yfir þær flýtiskipanir sem forritið hefur að geyma. Margar eru mjög gagnlegar en aðrar verða væntanlega seint notaðar að einhverju ráði.

Heimild: Pchere.blogspot.com.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni