Close

Svona gerum við

Námsefni

Hver sagði?

12 Jul Uncategorized | Athugasemdir

“Who said?” er sniðugur leikur á Netinu sem án efa höfðar til allra þeirra sem hafa áhuga á bókmenntum. Markmiðið með leiknum er að geta upp á sögupersónu, bókartitli og höfundi bókar með því einu að hlusta á stuttan upplestur. Hlustendur sem telja sig vita svarið við fyrrgreindum spurningum geta sent það inn á vefnum og ef svo vel vill til að viðkomandi er fyrstur til að geta upp á réttu svari hans getið í næstu umferð.

“Who said?” er skemmtilegur og fróðlegur leikur en hann er ekki síður áhugaverður vegna þess að netverjar geta gerst áskrifendur að honum. “Who said?” er nefnilega mjög gott dæmi um vel heppnað Podcast. Podcast er í stuttu máli litlar, eða oftast nær litlar, hljóðskrár sem dreift er um Netið með aðstoð RSS.

Þess má geta að nýjasta útgáfa iTunes hugbúnaðarins frá Apple býður upp á mjög einfalda leið fyrir hvern sem er að gerast áskrifandi að hljóðrænu efni eins og "Who said?".

Óska hér með eftir íslenskri þýðingu á hugtakinu "podcasting" – hvað með "hljóðvarp" ?



Tengt efni

Skráðu athugasemd