Viðtalið var stutt en mjög áhugavert. Eitt af því sem ég var sérstaklega ánægður að heyra er að báðir eru þeir miklir áhugamenn um Moodle námsstjórnunarkerfið. Reynsla beggja af kerfinu er mjög jákvæð og báðir tala um hversu einfalt það er í notkun og þá sérstaklega saman borið við önnur, dýrkeyptari kerfi. Moodle er að sjálfsögðu námsstjórnunarkerfi Fjölbrautaskólans í Breiðholti og er hægt að sjá það að verki á vefnum www.dreifnam.is.


