Wikipedia alfræðiritið og framtíð netsamfélaga
Á vefnum ITConversations (http://www.itconversations.com) má finna fjöldan allan af áhugaverðum viðtölum, fyrirlestrum og umfjöllunum um allt sem hefur með upplýsingatækni og hagnýtingu hennar að gera. Áskrift að vefnum er án endurgjalds en þeir sem áhuga hafa geta stutt við framtakið með frjálsu peningaframlagi.
Á ITConversations má m.a. finna skemmtilega umfjöllun um hið stórmerkilega alfræðirit Wikipedia, þar sem Jimmy Wales er forseti Wikimedia stofnunarinnar og fjallar um Wikipedia og framtíð netsamfélag (social computing).
Wikipedia er án efa stærsta vefbundna alfræðiritið sem þekkist og er fullkomlega unnið af sjálfboðaliðum. Þegar þetta er skrifað inniheldur enska útgáfa Wikipedia yfir 640.000 greinar en Wikipedia er einnig til á öðrum tungumálum s.s. þýsku (yfir 270.000 greinar), frönsku (yfir 130.000 greinar), pólsku (yfir 76.000 greinar) og íslensku (http://is.wikipedia.org) yfir 3000 greinar.


