Close

Svona gerum við

Námsefni

Gestakort með Google maps

17 Aug Uncategorized | Athugasemdir
Á Closing the Gap ráðstefnunni sem ég fór á síðasta vetur voru hengd upp tvö stór landakort, annað yfir Bandaríkin og hitt aðra heimshluta. Þátttakendur á ráðstefnunni tóku síðan litla pinna og merktu við þann stað sem þeir komu frá. Þetta fannst mér bráðsniðug hugmynd.

Kort_1

Nú má gera sama hlutinn á einfaldan hátt Netinu með því að hagnýta MyGuestmaps, enn eina skemmtilega viðbótina við Google Maps kortasjána.
Á þennan máta geta allir sem vilja birt landakort á vefnum sínum þar sem gestir geta skráð heimsókn sína með því einu að smella á heimabæ sinn á
kortinu.

Guestmap_2

Þegar smellt er á kortið birtist lítil táknmynd (hægt er að velja um nokkrar tegundir) auk þess sem viðkomandi getur skráð
inn upplýsingar um sig, s.s. nafn og slóð að vefsíðu.



Tengt efni

Skráðu athugasemd