Staðleysur, iPod og tölvustutt nám

Skrifað 20. August 2005
Engar athugasemdir frá lesendum

Robert Viau er prófessor við ríkisháskólann í Georgíufylki í Bandaríkjunum og kennir þar m.a. áfanga þar sem fengist er við útópíur / distópíur. Í grein sem Viau skrifar í Campus-technology lýsir hann því hann því hvernig hann samþættir texta, myndir, myndskeið og tónlist á skapandi hátt í kennslunni.

Viau heldur úti vef í tengslum við áfangann þar sem hann hefur safnað saman hundruðum mynda af sögulegum byggingum og listaverkum margvíslegum sem tengjast viðfangsefninu. Í áfanganum lesa nemendur klassískar fantasíur s.s. Inferno eftir Dante, Utopia eftir Moore, 1984 eftir Orwell og Gulliver’s Travels eftir Swift. Þar að auki hefur hver nemandi yfir að ráða iPod spilara sem inniheldur yfir 2500 tónlistarskrár (allt frá klassískri tónlist í nútímapopp) og upplesin ljóð og hljóðritanir af frægum ræðum. Viau hefur einnig ákveðið taka upp fyrirlesra sína og dreifa með aðstoð RSS/Podcasting nú þegar kennsla áfangans hefst aftur í haust. Umræður á Netinu skipa einnig stóran sess í áfanganum og notast er við WebCT námsstjórnunarkerfið til að halda utan um þær.

Viau er sannfærður um kosti upplýsingatækninnar sem hann segir bjóða upp á ótrúlega möguleika fyrir bæði hann sem kennara og nemendur sína. Ágætt dæmi um hvernig Viau samþættir hljóð og mynd í kennslunni er verkefni sem hann leggur fyrir nemendur þar sem þeir eiga að skoða málverkið Eyja hinna dauðu (e. Arnold Boecklin) og um leið hlusta á samnefnt tónverk (e. Rachmaninoff) og síðan fjalla um bæði verkin, strúktúr þeirra, stíl, litanotkun, huglæg áhrif og fleira.

Ég hvet alla sem áhuga hafa á því að kynna sér spennandi hagnýtingu upplýsingatækni í kennslu að lesa greinina “eLearning Utopia: iPods Meet Course Management in the Classroom” eftir Robert Viau.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni