Close

Svona gerum við

Námsefni

Stofnfundur áhugamannafélags um frjálsa hugbúnaðarstöð

Laugardaginn 27. ágúst verður haldinn stofnfundur áhugamannafélags um frjálsa hugbúnaðarstöð. Fundurinn verður haldinn að Skipholti 1 í húsnæði Listaháskóla Íslands kl. 13:00. Hlutverk áhugamannafélagsins skal vera að stuðla að stofnun og uppbyggingu frjálsrar hugbúnaðastöðvar ásamt Ríkinu, Reykjavíkurborg og hagsmunaaðilum.

Hlutverk frjálsrar hugbúnaðarstöðvar skal vera:

  1. Að stuðla, styðja við og hvetja til tilraunainnleiðingar frjáls hugbúnaðar á vettvangi hins opinbera.
  2. Að rannsaka árangur af slíkri innleiðingu og meta hagkvæmni hennar í samanburði við aðra valkosti.
  3. Að halda utan um og miðla þekkingu og reynslu sem myndast við innleiðingu frjáls hugbúnaðar með ráðgjöf, ráðstefnu- og námskeiðahaldi, útgáfustarfi o.s.frv.
  4. Að stuðla að og styðja  þróun frjáls hugbúnaðar sem mætir séríslenskum þörfum.
  5. Að bjóða upp á rannsóknaraðstöðu fyrir þá, sem vinna rannsóknarverkefni tengd frjálsum hugbúnaði og vera vettvangur fyrir háskólana til að  ná snertingu við atvinnulíf og stofnanir hins opinbera varðandi frjálsan hugbúnað.
  6. Að vera vettvangur fyrir sjálfboðaliða, sem vinna að verkefnum tengdum frjálsum hugbúnaði. gæti verið á þessa leið
  7. Að vera vettvangur fyrir þau fyrirtæki og stofnanir sem kanna vilja möguleika frjáls hugbúnaðar til að nálgast ráðgjöf og upplýsingar.
  8. Að vera vettvangur fyrir þau fyrirtæki sem styðja vilja við  rannsóknir og þróun á sviði frjáls hugbúnaðar til að hvetja til og benda á möguleg verkefni til að sinna.
  9. Að vera allsherjar vettvangur fyrir umræðu, rannsóknir og þróun á sviði frjáls hugbúnaðar á Íslandi og þar með mynda mótvægi og valkost við hið gífurlega markaðsetningarafl einkaeignarhugbúnaðar.
  10. Að vinna gegn "monoculture" og de facto einokunar á sviði upplýsingatækni hins opinbera  og stuðla með því að dreifingu áhættu, sjálfstæði gagnvart birgjum og þjónustuaðilum og að auka þekkingu almennt á þeim  valkostum sem fyrir hendi eru í frjálsum hugbúnaði.



Tengt efni

Skráðu athugasemd