Myndir og myndasöfn

Skrifað 07. September 2005
Flokkur: Uncategorized
Engar athugasemdir frá lesendum

Myndataka_2Hvað varðar aðgengi að stafrænum myndum fyrir kennara og nemenda til að nota í verkefnavinnu eða námsefnisgerð þá er um tvo valkosti að ræða, þ.e. ef við höfum ekki stafræna myndavél við höndina. Við getum í fyrsta lagi keypt myndir (eða notendarétt að myndum), eða sótt myndir á Netið sem ekki eru varðar með höfundarétti (eða höfundur gefur leyfi til notkunar á myndinni).

Það eru ýmsar leiðir til að nálgast myndir sem höfundar hafa gefið leyfi fyrir notkun á. Einfaldast er að leita í myndabönkum sem sérhæfa sig í slíkum myndum. Hér eru slóðir á nokkra algenga ljósmyndabanka (ég forðast alla myndabanka sem opna sprettiglugga/auglýsingaglugga):

Hér eru síðan nokkrir sem sérhæfa sig í smámyndum (clipart).

Leitarvélar

Á Netinu finnast einnig leitarvélar sem sérstaklega eru ætlaðar til þess að hafa uppi á myndum sem óhætt er að nota án endurgjalds.

  • Creative commons leitarvélin
    http://search.creativecommons.org/
    Finnur efni sem skráð hefur verið samkvæmt leyfisskilmálum Creative Commons. Frekari upplýsingar um Creative Commons leyfin má finna hér.
  • YotoPhoto
    http://yotophoto.com/
    Yotophoto nefnist ný og mjög áhugaverð leitarvél á Netinu þar sem hægt er að leita eftir ljósmyndum. Ólíkt hefðbundnum leitarvélum finnur Yotophoto ljósmyndir sem birtar eru með opnum leyfisskilmálum, s.s. Creative Commons, Free use, GNU FDL eða Public Domain (almenningi). Eins og gefur að skilja eru myndirnar mjög ólíkar að gæðum en Yotophoto leitar í nokkrum af stærstu opnu myndabönkum á Netinu.Notendur eru hvattir til að kynna sér leyfisskilmála áður en þeir sækja/nota myndir sem þeir hafa uppá með aðstoð Yotophoto. Athugið að opnir myndabankar gera oftast kröfu um að notendur skrái sig fyrir aðgangi áður en myndir eru sóttar í fullri upplausn, sem er þá að sjálfsögðu án endurgjalds.

Ódýrar en vandaðar myndir

Stundum er nauðsynlegt að kaupa myndir og mæli ég þá sérstaklega með tveimur myndabönkum á Netinu. Þeir eiga það sameiginlegt að bjóða ódýrar myndir og vandaðar.

  • Istockphoto
    http://www.istockphoto.com/index.php
    Mikið úrval af hvers kyns myndum, ljósmyndum og smámyndum. Hér má finna myndir sem henta bæði fyrir prentað efni og efni sem ætlað er til birtingar á skjá. Ég nota þessa þjónustu töluvert.
  • clipart.com
    http://www.clipart.com
    Gríðarlegt úrval mynda. Henta fyrst og fremst til birtinga á skjá en má nota við gerð prentaðs efnis ef ekki er gerð krafa um hámarksupplausn. Nota þennan myndabanka sjálfur töluvert.

Um höfundarétt


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni