Google earth er án nokkurs vafa ótrúlegt verkfæri í höndum skapandi kennara og nánast himnasending fyrir alla þá sem áhuga hafa á því að hagnýta upplýsingatæknina í námi og kennslu.
Á umræðuvefnum bbs.keyhole.com má finna samfélag Google earth notenda og geta allir sem vilja skráð sig þar inn og tekið þátt í samræðunni. Á umræðuvefnum kennir ýmissa grasa en þar má m.a. finna umræður sem snúa að námi og kennslu undir liðnum "Education".
Auk áhugaverðra umræðna, ábendinga og hugmynda má sækja á umræðuvefinn fjöldan allan af spennandi efni sem þátttakendur á bbs.keyhole.com vefnum hafa gert aðgengilegt. Efnið er í formi kmz skráa sem sóttar eru (eða tvísmellt á "Open this Placemark" krækjuna fyrir neðan titil innleggsins) og þær síðan opnaðar í Google earth forritinu.
Sjón er sögu ríkari. Hér fyrir neðan eru tvö áhugaverð sýnishorn sem útskýra betur en margt annað hvað ég á við:
- Seinni heimstyrjöldin
Allir helstu staðirnir sem komu við sögu í seinni heimstyrjöldinni, beintengdir við Wikipedia alfræðiorðabókina.
- Ameríska borgarastyrjöldin
Staðsetningar á yfir 300 stöðum þar sem bardagar voru háðir í amerísku borgarastyrjöldinni. Hver staðsetning er beintengd viðkomandi síðu á americancivilwar.com vefnum.



