Close

Svona gerum við

Námsefni

Google earth + vefleiðangur = hnattleiðangur (Earthquest)

Með tilkomu Google earth hafa fjölmargir áhugasamir kennarar upphugsað nýjar og spennandi leiðir til þess að nýta upplýsingatæknina í skólastofunni. Ein afar áhugaverð leið felst í því að blanda saman Google earth og hefðbundnum vefleiðangri og búa til úr því dálítið sem kallað hefur verið hnattleiðangur, eða “Earthquest” á ensku.

Hnattleiðangrar eru ný tegund vefleiðangra þar sem nemendur, líkt og í hefðbundnum vefleiðöngrum, leysa fyrirfram ákveðin verkefni sem öll eru byggð upp á sambærilegan hátt. Líklegast er best að útskýra þetta með dæmi.

Sjö undur veraldar
Sjö undur veraldar er einfaldur en sniðugur hnattleiðangur eftir Hollendinginn Gerard Dümmer. Hann má sækja með því að smella á “Seven World Wonders” Krækjuna neðst á þessari síðu. Þegar hnattleiðangurinn er opnaður má sjá litlar táknmyndir á kortinu, eina fyrir hvert af sjö undrum veraldar.Nemendur leysa hnattleiðangurinn á eftirfarandi hátt.

Leiðbeiningar með hnattleiðangrinum eru eftirfarandi:

  1. Kynntu þér sjö undur veraldar með því að smella á hvert þeirra á Google earth. Þú þarft að safna eftirfarandi upplýsingum um hvert þeirra (til þess er notað sérstakt svarblað):
    1. Hvað heitir það.
    2. Í hvaða landi er það eða var það staðsett.
    3. Hver var tilgangurinn með því.
    4. Hvað er langt síðan það var byggt.
    5. Nákvæm staðsetning, þ.e. í lengdar og breiddargráðum.
  2. Búðu til þinn eigin sýndarleiðangur í Google Earth um önnur veraldarundur. Þú verður að notast við í það minnsta sjö staði.
  3. Kynntu kennara og nemendur fyrir þínum hnattleiðangri og notaðu til þess Google Earth.



Tengt efni

Skráðu athugasemd