Netið er ekki bara að stöðugt stækka að umfangi og innihaldi heldur er það að taka miklum eðlisbreytingum um þessar mundir. Til þess að skýra þessar breytingar hefur orðið til hugtakið Web 2.0.
Web 2.0 einkennist af frjálsu flæði gagna, forritskóða og jafnvel hugmynda um óravíddir Netsins. Vefir eru ekki lengur fastmótaðir heldur lifandi og opnir. Opnir staðlar og sífellt öflugri en um leið einfaldari verkfæri hafa gert hefðbundnum vefnotanda einfalt um vik að viða að sér efni úr öllum áttum og tengja á gagnvirkan hátt við t.d. bloggvefinn sinn.
Flickr netsamfélagið er dæmigert fyrir Web 2.0. Mynd notenda eru hýstar miðlægt en einfalt er að birta þær hvar sem er á Netinu. Allt er tengt á ótal vegu og svigrúm til sköpunar er óendanlegt. Hver sem hefur
áhuga og getu á þess kost að forrita eigin viðbætur við kerfið og auka þannig enn á möguleikana.
Web 2.0 er ólínulegt og óútreiknlegt eins og vefurinn sjálfur, ekki staðnað heldur lifandi. Web 2.0 er í senn tækni og hugmyndafræði sem snýst um netverja, samfélög og samskipti. Og kannski er Web 2.0 fyrst og fremst frelsi til að móta og miðla upplýsingum á þann hátt sem hver og einn kýs helst.
Hér má lesa góða umfjöllun um Web 2.0


