Close

Svona gerum við

Námsefni

Áhugavert efni fyrir kennara og nemendur

TaflaHér má finna lista yfir nokkuð af öllu því áhugaverða efni sem rekið hefur á fjörur mínar á Netinu og ég hef prófað með góðum árangri. Allt efnið á það sameiginlegt að það hentar ágætlega í skólastarfi og hægt er að sækja það og/eða nýta án endurgjalds á Netinu.

Techsyms500 ókeypis táknmyndir sem henta vel í kennslu og samskiptum
Tech/Syms er safn táknmynda sem ætlaðar eru til nota í kennslu og samskiptum. Myndirnar eru á WMF sniði og því hægt að nota öllum algengum forritum sem kennarar nýta, s.s. ritvinnslu, Clicker og Boardmaker. Tech/Syms safnið er til í 9 flokkum sem hver inniheldur yfir 500 myndir.

Á vef útgefanda er hægt að sækja einn flokkinn án endurgjalds (athugið að nauðsynlegt er að skrá sig áður en hægt er að sækja myndirnar).

ArtrageArtRage
ArtRage er sérlega vel heppnað teikniforrit sem hentar mjög vel við kennsluaðstæður. ArtRage er sérstakt að því leyti að teikniverkfæri forritsins herma eftir raunverulegri áferð hefðbundna teikniáhalda, s.s. pensils, blýants og krítar. ArtRage býður einnig upp á þann skemmtilega möguleika að birta notandanum í bakgrunninum daufa mynd af því sem ætlunin er að teikna. þannig má taka stafrænar myndir og nýta sem fyrirmyndir í listsköpuninni.

Á bloggvef starfsbrautar má m.a. sjá listaverk unnið í Artrage af nemanda í starfsbraut FB þar sem forritið er notað í kennslu. Síðast en ekki síst þá er ArtRage ókeypis og bæði til fyrir PC tölvur og Macintosh

FurblesFurbles

Furbles er einfaldur en öflugur hugbúnaður til þess að vinna með algeng hugtök í stærðfræði, s.s. fjölda og form. Furbles er opið umhverfi sem býður upp á mikla möguleika í kennslu yngri nemenda og nemenda með sérþarfir. Furbles hentar einstaklega vel til að nota með gagnvirkum skólatöflum.

Clicker_1Clicker vefur Kristínar Steinarsdóttur

Kristín Steinarsdóttir hefur undanfarin ár unnið mjög spennandi hluti með Clicker hugbúnaðinum og m.a. áhugavert þróunarverkefni þar sem markmiðið var að efla sjálfstæði nemanda með fötlun. Kristín hefur gert aðgengilegt á vef sínum Clicker efni sem ætlað er að nota með lestrarbókunum Listin að lesa og skrifa. Kennsluefni er með lestrarbókum númer 1-8 og 1a-8a. Átta verkefni/grindur fylgja með hverri bók eða samtals 128 grindur með öllu efninu. Þá eru grindurnar bæði fáanlegar ótalsettar eða talsettar. Efnið nýtist eingöngu með forritinu Clicker og er öllum frjálst að nota það.

FlickrFlickr netsamfélagið

Flickr er opið netsamfélag (social network) sem sýslar sérstaklega með myndir og myndstrauma. Grunnaðgangur að Flickr er öllum ókeypis og einfalt að skrá sig. Flickr er spennandi verkfæri í námi og kennslu og er t.a.m. mikið notað á starfsbraut FB. Salvör Gissurardóttir, kennari við KHÍ, hefur samið íslenskar leiðbeiningar við Flickr og gert aðgengilegar á Netinu.

Spesisutbraut.fb.is/sfjalar

Að lokum bendi ég á sérkennsluvefinn minn þar sem viðfangsefnið er hagnýting upplýsingatækninnar í sérkennslu.



Tengt efni

Skráðu athugasemd