Tengiliðir og hópar í Flickr

Skrifað 22. October 2005
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Flickr_logo_1Flickr býður upp á fjölmarga kosti aðra en hýsingu á myndum notenda. Þar má t.a.m. finna öfluga möguleika sem snúa að samskiptum og samvinnu meðal notenda þjónustunnar. Einföld leið til þess að mynda tengsl við aðra Flickr notendur felst í því að gera viðkomandi að tengilið (contact). Hver notandi getur stofnað til tengsla við ótilgreindan fjölda annarra notenda á þennan hátt og fylgst með því hvaða myndum þeir eru að bæta við safnið sitt.

Svona eru tengiliðir stofnaðir í Flickr:

  1. Innskráðu þig á Flickr
  2. Smelltu á People krækjuna efst á skjánum
  3. Leitaðu eftir notandanum sem þú vilt gera að tengilið með því að slá inn nafn eða Flickr-nafn viðkomandi í search for people reitinn. Ef þú veist slóðina að Flickr vef viðkomandi má einnig heimsækja hann
  4. Smelltu á “Like x photos? Subscribe to them! Add him/her as a contact” sem sýnilegt er undir nafni viðkomandi.

Næst þegar þú skráir þig inn á Flickr sérðu liðinn Photos from your contacts og þar undir fjórar nýjustu myndirnar fra tengiliðunum þínum. Your Contacts krækjan vísar einnig á síðu þar sem hvenær sem er má sjá allar myndir tengiliðanna.


Hópar

Önnur skemmtileg leið til samvinnu/samskipta með aðstoð Flickr felst í því að stofna hóp (group). Hópar geta innihaldið ótilgreindan fjölda meðlima og eru vettvangur til þess að deila áhugaverðum myndum auk þess sem þar má stofna til umræðu. Ótal hópar eru þegar til staðar innan Flicker og hafa margir þeirra verið stofnaðir í kringum ákveðið viðfangsefni. Hópar geta verið almennir (public) eða lokaðir (private). Hér eru nokkrir áhugaverðir, almennir hópar:

  • Reykjavik
    http://www.flickr.com/groups/35468133433@N01/

    Eins og nafnið gefur sterklega til kynnar, má hér finna
    myndir úr Reykjavík. Þegar þetta er skrifað hafa alls 175 myndir verið skráðar og meðlimir eru
    75 talsins.
  • Beautiful scenery
    http://www.flickr.com/groups/scenery/
    Hér er safnað saman myndum af fallegu landslagi. Meðlimir eru yfir 2500 og tæplega 29.000 myndir hafa verið sendar inn, margar ótrúlega fallegar. Alltaf gaman að skoða myndirnar sem þarna eru.
  • Cameratoss
    http://www.flickr.com/groups/cameratoss/
    Myndirnar hér eiga það sameiginlegt að vera teknar á mjög sérstakan hátt. Meðlimir eru 470 og yfir 330 myndir tilheyra hópnum þegar þetta er skrifað.

Flickr notendur geta annað hvort eða bæði, gerst meðlimir í hóp sem þegar er til staðar eða stofnað eiginn hóp. Einungis meðlimir geta sent myndir í viðkomandi hóp.

Svona gerist þú meðlimur í hóp á Flickr

  1. Innskráðu þig á Flickr

  2. Smelltu á groups krækjuna efst á skjánum

  3. Sláðu inn leitarorð í reitinn “search for groups”

  4. Smelltu á heiti hópsins sem þú vilt gerast áskrifandi að

  5. Smelltu á “Join this Group” hnappinn til þess að gerast meðlimur í hópnum

Hópar eru sameiginlegur vettvangur Flickr notenda sem vilja deila með sér áhugaverðum myndum. Þátttaka í hóp grundvallast þess vegna á því að notendur sendi inn myndir.


Svona eru myndir sendar í hóp

  1. Smelltu á myndina sem þú vilt senda
  2. Smelltu á “Send to Group” hnappinn fyrir ofan myndina
  3. Veldu hópinn sem senda á myndina í

Tengt efni

Skráðu athugasemd