Powerpoint sniðmát

Skrifað 28. October 2005
Flokkur: Sniðmát
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég hef gert töluvert af því, að leita eftir ókeypis Powerpoint sniðmátum á vefnum. Við leitina hef ég notað ýmsar leitarvélar og vænlegt leitarorð eins og t.d. „Free Powerpoint templates“ eða bara „Powerpoint templates“. Árangurinn hefur líka verið ágætur. Vinsælasta leitarvél Netsins, Google, skilar t.d. hátt í 3,560,000 niðurstöðum þegar leitað er eftir „Powerpoint templates“. Ekki slæmt það.

Þegar uppgefnar síður eru skoðaðar nánar kemst maður hins vegar fljótlega að því, að flest sniðmátin sem þær hafa að geyma eru ómöguleg, nánast ónothæf. Ég gæti giskað á að u.þ.b. 85% allra þeirra ókeypis sniðmáta sem ég hef fundið á Netinu séu afar illa unnin og vægast sagt mjög óspennandi. Þó gerist það við og við, að maður rekst á vefi sem hafa að geyma vönduð ókeypis sniðmát. Ég hef tekið saman lista yfir nokkra slíka vefi sem vert er að skoða:

  • Presenters University
    Þetta eru með vönduðustu Powerpoint sniðmátum sem hægt er að sækja ókeypis á Netinu. Til þess að sækja þau þurfa notendur að skrá sig, en það er vel þess virði.
  • Brain Betty
    Hér má finna mikinn fjölda sniðmáta sem mörg hver eru ágætlega unnin. Snimátin eru flokkuð þannig að auðvelt er að finna eitthvað við hæfi en þau eru þjöppuð þannig að nota þarf Winzip eða ámóta forrit til að afþjappa þeim.XEROX
    Ekki nema tíu sniðmát hér en vel unnin.
  • Color Connection
    Yfir 20 vönduð sniðmát sem hægt er að sækja og nota án nokkurra vandræða. PS. Skoðið líka þessa síðu á sama vef
  • Soniacoleman
    Alls 208 sniðmát. Mörg eru ekkert sérstök eins og gefur að skilja en þarna má þó finna sniðmát sem vel má nota.
  • Powerpoint Templates
    Yfir 20 mjög vönduð sniðmát, en það þarf að skrá sig til að sækja. Athugið að þegar farið er fram á netfang áður en ókeypis efni er sótt á Netið er heppilegt að gefa upp eitthvað netfang sem sérstaklega er hannað fyrir slíkar aðstæður, þ.e. netfang sem ekki er notað fyrir almennan póst.

Athugið að einnig er hægt að sækja sniðmát á vef Microsoft og er einfalt að gera það beint frá Powerpoint.

Hvernig eru sniðmátin sótt og notuð?
Sniðmát eru yfirleitt sótt með því að smella á krækju eða mynd af sniðmátinu með annað hvort vinstri eða hægri músarhnapp. Birtist þá gluggi þar sem notandinn ákveður hvar vista á sniðmátið á eigin tölvu. Mikilvægt er að muna þá staðsetningu. Powerpoint sniðmát hafa endinguna .pot (Powerpoint templates), stundum er þó verið að sækja hefðbundin Powerpoint skjöl (með grafík en án innihalds) og er þá endingin .ppt.

Tvær leiðir eru til þess að nota sniðmát sem sótt er á þennan máta. Í fyrsta lagi má einfaldlega tvísmella á það og opnast þá Powerpoint forritið tilbúið til notkunnar með viðkomandi sniðmáti. Hins vegar getur verið betra að setja upp (install) sniðmátið, t.d. til að geta nýtt það á sama máta innbyggðu sniðmátin sem fylgja Powerpoint:

  • Ræstu Powerpoint
  • Veldu Open af File valseðlinum
  • Finndu sniðmátið sem þú vilt setja upp og smelltu á open hnappinn
  • Veldu File>Save As.
  • Í glugganum sem opnast velur þú Save As Type fellilistann og velur þaðan Design template (*.pot). Rétt mappa ætti að opnast (þ.e. templates mappan)
  • Smelltu á Save og sniðmátið er tilbúið til notkunnar.

Athugið að listinn yfir sniðmát hér að ofan er engan veginn tæmandi og stöðugt bætist eitthvað nýtt og spennandi við. Leitið og þér munið finna.

Ath. ég hef áður skrifað um þetta efni á Netið en þessi grein er aukin og endurbætt.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni