Vaxandi áhugi er merkjanlegur meðal fagaðila á sviði náms og menntunar hvað varðar notagildi og þau tækifæri sem notkun tölvuleikja skapar í námi ungs fólks. Fram til þessa hafa rannsóknir á tölvuleikjum og áhrifum þeirra einkum beinst að umhverfinu utan skólans og þá helst óæskilegum áhrifum leikjanna. Minna hefur verið um rannsóknir þar sem könnuð hafa verið áhrif vandaðra hermileikja eða leikja sem hannaðir hafa verið með nám og kennslu í huga.
Nýverið hafa hins vegar vaknað fjölmargar spurningar um möguleika tölvuleikja í skólastarfi og er óhætt að segja að nokkur vakning hafi orðið á þessum vettvangi.
Nesta Futurelabs er stofnun þar sem sjónum er beint að möguleikum nútímatækni í námi og kennslu. Á vegum stofnunarinnar er komin út handbók sem hefur að geyma yfirlit yfir nýlega þróun á sviði tölvuleikjahönnunar þar sem áhersla er lögð á nýtingu leikjanna í skólaumhverfi. Í handbókinni er einnig fjallað um þá spurningu hvort og hvernig nýta megi tölvuleiki í skólastarfi.
Handbókin nefnist “Games and Learning” og er mjög áhugaverð lesning. Handbókina má sækja á pdf sniði án endurgjalds á vef Nesta Futurelabs.


