Close

Svona gerum við

Námsefni

Google Analytics

LogogoogleGoogle fyrirtækið hefur opinberað enn einu nýjungina í fjölbreyttri lausnaflóru sinni. Frekar en fyrri daginn er ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur heldur býður Google nú öllum sem áhuga hafa að fylgjast á skilvirkan hátt með með umferð notenda á öll vefsetur sem viðkomandi hefur umsjón með. Þjónustan nefnist Google Analytics og er aðgengileg án endurgjalds á Netinu.

Til þess að nýta sér kosti Google Analytics þarf fyrst að skrá sig fyrir aðgangi en áskrifendur að Gmail vefpósti Google geta samnýtt þann aðgang líkt og að öðrum þjónustum Google. Næst eru skráðar upplýsingar um þann vef sem ætlunin er að halda tölfræði yfir. Að því loknu birtir Google lítinn kóða sem settur er í haus (Head) allra þeirra vefsíðna á viðkomandi vef sem teljarinn á að fylgjast með. Ég hef farið í gegnum þetta ferli og staðfesti hér með að það er mjög einfalt að skrá vef á Google Analytics.

Hér verður ekki fjallað um gæði þeirrar þjónustu sem Google Analytics býður uppá, enda lítil reynsla komin á hana. Á hinn bóginn verður því ekki neitað að nákvæm tölfræði yfir umferð á og um vefsetur veitir umsjónaraðila mikilvægar upplýsingar um hegðan notenda og þar með kosti og galla vefs. Þjónustur eins og Google Analytics og hér er sjálfsagt að benda á íslenska fyrirtækið Modernus (sem undirritaður hefur nýtt sér með góðum árangri) eru gagnleg verkfæri fyrir alla þá sem vilja fá raunhæfa mynd af notkun vefsins í því skyni að geta markvisst stuðlað að endurbótum og áframhaldandi þróun.

Ég er sannfærður um að allir skólar sem halda úti vefsetri, og líklegast á það við um velflesta skóla landsins (hef ekki gert formlega könnun), hagnast á markvissum upplýsingum um hegðun notenda vefja þeirra. Skólavefir eru eins misjafnir og þeir eru margir en eitt af markmiðunum með að halda þeim úti er að efla upplýsingamiðlun til nemenda, væntanlegra nemenda og allra sem skólanum tengjast (og það er ansi stór hópur). Með þetta í huga þá er sjálfgefið að ítarlegar upplýsingar um notkun vefsins gagnast vefumsjónarmönnum á margvíslega vegu. Þannig má fá yfirlit yfir mest sóttu síðurnar og draga þannig ályktanir hvað varðar efnisval, framsetningu og aðgengi. Það er ekki síður mikilvægt að komast að því hvaða efni er ekki sótt á vefnum, kannski vegna þess að það er óaðgengilegt einhverra hluta vegna.

Þjónusta eins og Google Analytic, Modernus og aðrar slíkar eru því vel þegnar í því skyni að auka þjónustu og gæði starfsins.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

  1. sfjalar » Mest lesið í mars04-01-06