Ókeypis forrit til að búa til PDF skjöl
Á Menntagátt er bent á mjög sniðugan hugbúnað sem gerir öllum sem vilja kleift að búa til PDF skjal úr t.d. Word eða Excel skrám. Kostirnir við PDF eru þeir að þá er hægt að vera viss um að framsetning efnis í skjali breytist ekki þó það sé opnað í tölvu sem keyrir á öðru stýrikerfi eða er ekki með viðkomandi forrit. AcrobatReader er notað til að lesa PDF skjöl og það geta allir nálgast á ókeypis á Netinu. PDF skjöl eru einnig þannig að ekki er auðvelt að breyta þeim og getur það líka komið sér vel.
Á Netinu má finna ókeypis forrit sem nota má til að búa til PDF skjöl, eitt þeirra er PDFCreator en það hefur reynst vel. Eftir að búið er að setja forritið upp, birtist það sem valmöguleiki þegar prentskipun er gefin í því forriti sem verið er að vinna í. Þegar „prentað“ er, býr forritið til PDF skjal.


