Fjarnám 2.0

Skrifað 27. November 2005
Flokkur: web 2.0
Engar athugasemdir frá lesendum

Vegna þeirrar hröðu þróunar sem á sér stað um þessar mundir á Netinu hefur orðið til hugtakið Web 2.0. Það er engu líkara en vefurinn hafi verið gæddur lífi. Allt í einu er Netið opið og aðgengilegt – gagnvirkt sem aldrei áður. Ekki það að Netið hafi verið lokað fram að þessu, en notendur þess eru ekki lengur óvirkir áhorfendur, fróðleiksfúsir, fréttaþyrstir lesendur heldur samábyrgir, jafnvel meðvirkir þátttakendur. Í stuttu máli sagt felst virðisauki vefs, samkvæmt þessum nýja skilningi, í samfélagsbundnu framlagi notenda hans.

Samfara þessari þróun hefur orðið til hugtakið eLearning 2.0. Nýlega flutti ég fyrirlestur sem ég kallaði Fjarnám 2.0 og fjallaði um þessar hugmyndir. Hér er fyrirlesturinn kominn í máli og myndum.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni