Sniðmát fyrir vefi

Skrifað 09. December 2005
Flokkur: Sniðmát
2 Athugasemdir frá lesendum

Það vita allir sem einhvern tímann hafa sett saman vef, að vefsmíði getur verið mjög tímafrek vinna. Þetta á ekki síst við þegar ætlunin er að smíða vefinn frá grunni, þ.e. hanna bæði útlit, virkni og jafnvel innihald.

Í þessu sambandi er vert að hafa í huga að vefsíðugerð er sambland margra ólíkra þátta eða fagsviða sem fæst okkar sem valið hafa kennslu sem starfsvettvang hafa sérfræðiþekkingu á. Eitt af þeim þáttum sem ég persónulega hef í vaxandi mæli eftirlátið öðrum hæfari aðilum er hönnun á útliti vefsins. Á þeim vettvangi hef ég oft leitað á gjöful mið útlitshönnuða sem annað hvort deila hver með öðrum verkum sínum eða bjóða áhugasömum netverjum upp á ókeypis sýnishorn af verkum sínum.

Hér á eftir fylgja slóðir að þremur vefjum þar sem hægt er að sækja án endurgjalds sniðmát að vefsíðum.


Tengt efni

  • No Related Post

2 athugasemdir við “Sniðmát fyrir vefi”

  1. Andri skrifar:

    Ég geri það stundum að líkja vefsmíði við arkitektúr. Það þarf að teikna og hanna, passa að vefurinn passi og virki fyrir alla notendur og fleira sem auðveldlega er hægt að bera saman við vinnu arkítekta.

    Það er rétt hjá þér að vefsmíði er oft flókin, til er mikið af villandi og úreltum upplýsingum um málið og svo eru ekki margir sem hafa menntað sig í greininni, þetta er auðvitað allt svo nýtt. Fólk heldur stundum að þetta sé ekkert mál og það sé hægt að henda upp vef á “no time”. Það hefur þá ekki nægilega þekkingu á efninu og gerir sér ekki grein fyrir ábyrgðin sem fylgir, eins og t.d að ganga úr skugga um að vefurinn virki fyrir fatlaða.

    Það þarf meiri professional vinnubrögð.

    Var staddur á stofnun SVEF (Samtök vefiðnaðarins) um daginn þar sem talað var um akkúrat þetta og því bætt í lög félagsins að “stuðla að faglegum vinnubrögðum” í greininni.

  2. Andri skrifar:

    Afsakið vesenið á mér, ómögulega séð hvort athugasemdin hafi komst til skila eða ekki :)

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni