Podcasting er orð ársins 2005
Ritstjórn The New Oxford American Dictionary orðabókarinnar hafa valið orðið “podcast” orð ársins 2005.
Meðal þeirra orða sem einnig komu sterklega til greina þegar valið var orð ársins voru eftirfarandi:
- bird flu
- ICE
- IDP
- IED
- lifehack
- persistent vegetative state
- reggaeton
- rootkit
- squick
- sudoku
- trans fat
Orðið “Podcast” varð fyrir valinu vegna ótrúlegrar aukningu á notkun þess á árinu, en sjálfsagt er að geta þess að orðið er ekki að finna í núverandi útgáfu “New Oxford American Dictionary”. Erin McKean, yfirritstjóri orðabókarinnar, segir að úr því verði bætt í nýrri útgáfu sem kemur út snemma árs 2006, en orðinu var hafnað við undirbúning síðustu útgáfu sökum þess hve útbreiðsla og notkun þess var takmörkuð.
Podcasting verður skilgreint sem stafræn upptaka af útvörpuðu efni eða samsvarandi efni sem gerð er aðgengileg á Netinu til notkunar á stafrænum spilurum.
Podcast, which is to be defined as “a digital recording of a radio broadcast or similar program, made available on the Internet for downloading to a personal audio player,”
Mér vitandi er ekki til staðar íslensk þýðing á orðinu Podcast þó margar tillögur hafa vissulega litið dagsins ljós. Sjálfur hef ég lagt til orðið “hljóðvarp” en vill nú koma með aðra hugmynd, þ.e. “spilverk”. Orðið spilverk finnst mér meðfærilegt orð og í því kjarnast ágætlega eðli “podcasting” og á ég þá kannski sérstaklega við fjölbreytileikann í efnisinnihaldi sem getur verið viðtal, fyrirlestur, persónulegar upptökur, útvarpsþáttur eða jafnvel leikrit eða bókalestur. Ég hef dálítið velt fyrir mér nauðsyn þess að notast við þessa “-varp” endingu til þess að ná merkingunni á bak við “casting” endingunni í “podcasting”. Ég er ennþá dálítið efins um þetta, en er smám saman að komast að þeirri niðurstöð að í raun sé ekki verið að útvarpa neinu heldur sækir sækir hver notandi fyrir sig það efni sem hann hefur áhuga á því að hlusta á. “Podcasting” orðið er því villandi hvað það varðar að verið sé að varpa einhverju. Skrárnar sem um ræðir eru hýstar á ákveðnum stað og svo sækja þeir notendur þær skrár sem þeir vilja með aðstoð þar til gerðs hugbúnaðar.
Heimild: www.prnewswire.com


