Einfaldlega ODEO
ODEO er vefbundin þjónusta sem gerir öllum sem áhuga hafa kleift að hlusta á, gerast áskrifendur að, taka upp og gera aðgengilegt hvers kyns hljóðefni á Netinu án endurgjalds. ODEO er án efa einfaldasta leiðin til þess að búa til og dreifa stafrænu hljóðefni á Netinu, þ.e. svo kölluðu “podcasting”. Umræður um íslenska þýðingu á hugtakinu “Podcasting” hafa verið nokkrar á Netinu en mér að vitandi hefur enn sem komið ekki komið fram þýðing sem allir (eða allavega flestir) geta verið sáttir með.
Þess má geta að í nýjustu útgáfu New Oxford American Dictionary verður “Podcasting” skilgreint sem stafræn upptaka af útvörpuðu efni eða samsvarandi efni sem gert er aðgengileg á Netinu til notkunar á stafrænum spilurum. Á ensku er textinn eftirfarandi “a digital recording of a radio broadcast or similar program, made available on the Internet for downloading to a personal audio player,”
En snúum okkur aftur að aðalumræðuefninu. ODEO er s.s. þjónusta þar sem skráðir notendur geta allt í senn, gerst áskrifendur að hljóðrænu efni, búið til stutta pistla, þætti, kennsluefni eða jafnvel persónulegt spjall og dreift án nokkurrar fyrirhafnar á Netinu. Allt í gegnum vefbundið viðmót og án tilkostnaðar þar sem sjálf þjónustan er án endurgjalds og engin þörf á að fjárfesta í sérhæfðum hugbúnaði. Jafnvel hljóðupptakan fer fram á Netinu (þeir sem vilja geta sótt eigin upptökur og gert aðgengilegar í gegnum ODEO).
ODEO er afar áhugaverð þjónusta sem gæti hæglega orðið samnefnari Flickr á sviði hljóðræns efnis. Það verður mjög spennandi að fylgjast með framhaldinu. Undirritaður hefur þegar tekið ODEO í notkun og getið þið, lesendur góðir, snúið vöfrum ykkar hingað og hlustað á herlegheitin. Ekki búast við miklu svona fyrst í stað.




