Wordpress er málið

Skrifað 19. December 2005
Flokkur: Asides
Ein athugasemd frá lesendum

Þessa dagana vinn ég hörðum höndum við að færa færslur af Typepad kerfinu yfir á Wordpress. Ég hef því miður enga þolinmæði lengur gagnvart endalausum vandamálum SixApart þjónustunnar, sem virðist eiga í mestu vandræðum með að halda kerfinu sínu gangandi. Eftir að hafa reynt bæði kerfin er ég líka orðinn þeirrar skoðunnar að Wordpress sé mun betra kerfi með miklu fleiri og skemmtilegri möguleikum.


Tengt efni

  • No Related Post

1 athugasemd við “Wordpress er málið”

  1. Björgvin Þorsteinsson skrifar:

    Nú hef ég ekki nýtt mér blogghýsingarþjónustu SixApart eða Typepad kerfið en ég hef hinsvegar notað MovableType (MT) á mínum eigin netþjóni.

    Ég hef einnig notað Wordpress (WP) en ég byrjaði að blogga af einhverju viti með því, í síðustu bloggtilraun sem er enn í gangi :)

    Mín skoðun er sú að bæði þessi kerfi hafa kosti og galla. Það sem mér fannst skipta mestu máli í mínu vali var uppfærsluferlið. Þ.e. þegar kemur að uppfærslu á kerfinu er MT með mun einfaldara ferli, þó það séu til uppfærslu plugin fyrir WP.

    Ein stærsta ástæðan fyrir vali mínu á MT var einmitt sú að ég sé um að uppfæra mörg blogg hjá vinum og vandamönnum sem allir notuðu WP og það tók einfaldlega of mikinn tíma en uppfærslurnar voru oft mjög tíðar.

    Yfirleitt er það þó gott, að uppfærslur séu tíðar, en WP hópurinn var samt staðinn að því að uppfæra “sliently” án þess að breyta version númeri og/eða láta vita af þeirri uppfærslu en þetta var XML-RPC villa ef ég man rétt.

    Hinsvegar verður ekki deilt um það að WP er mun sveigjanlegra en MT, það eru til mun fleiri theme, plugin og annað fyrir WP.

    Aftur á móti er MT með template kerfi sem cachar síðurnar og getur því höndlað meira álag. En aftur á móti eru þessi venjulegu blog ekki með mjög mikið álag :)

    Það er því undir hverjum og einum komið að velja sér kerfi við hæfi :)

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni