Performancing for Firefox er mjög gott dæmi um þá miklu grósku sem er svo einkennandi fyrir opinn hugbúnað þar sem framlög notenda eru vel þegin sem mikilvægur þáttur í hönnun og framþróun hugbúnaðarlausna. Performancing er einungis ein af fjölmörgum áhugaverðum viðbótum (hér nota ég orðið viðbót bæði yfir plugins og extensions) við Firefox vafrann og hvet ég lesendur til þess að kynna sér ört vaxandi flóru viðbóta á vef Firefox.



Færðu íslenska stafi til að virka á þessu .Þeir koma bara í bulli hjá mér.
Lítur út fyrir að vera frábært extension annars.
Er sjálfur búinn að nota þetta aðeins með WP blogginu mínu og þetta virkar bara þrusus vel.
Virkar mjög vel hjá mér. Vefurinn minn er í utf-8 þannig að það er kannski ástæðan fyrir því að ég er ekki að lenda í vandræðum með íslenskuna.