Flickr myndasýningum varpað á vefi
Hinn grískættaði bloggari Paul Stamatiou hefur birt á vef sínum einstaklega sniðuga leið til þess að varpa Flickr myndasýningum (slideshows) á hvaða vefsíðu sem er. Lausn Stamatiou felst í því að skilgreina iframe sem inniheldur Flickr myndasýninguna og þannig samþætta hana viðkomandi vef. Flickr myndasýningar eru á flash sniði og sýnir Stamatiou á vef sínum einnig hvernig einfalt er að ráða innihaldi þeirra, s.s. hvaða myndir á að birta. Þessi tækni er m.a. nýtt á vef starfsbrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti til að birta myndir úr skólastarfinu.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig hægt er að samþætta Flickr myndasýningu hvaða einstaka bloggfærslu sem er.
Hér er síðan önnur leið til að framkvæma nokkurn vegin sama hlutin, en þó með þeim hætti að myndasýningin opnast ein og sér í sprettiglugga. Það er örlítið flóknara verk, en brasilíski bloggarinn Daniel Spillere Andrade hefur gert aðgengilegan kóða sem einfaldar það til muna.


