Netið hefur engin áhrif á námsárangur!
Niðurstöður nýlegrar könnunar Háskólans í Chicago þar sem rannsökuð voru áhrif hins svo kallaða “E-Rate” verkefnis sem ætlað var að reyna að brúa stafrænu gjánna milli skóla í Bandaríkjunum benda til þess að aðgengi að Netinu hafi engin áhrif á námsárangur.
Þrátt fyrir að aðgengi efnaminni skóla að Netinu hafi aukist umtalsvert með tilkomu “E-Rate” og þar með aðgengi nemenda að Netinu virðist það ekki hafa haft hin minnstu áhrif á árangur nemenda á “Stanford Achievement” prófinu sem lagt hefur verið fyrir nemendur í Kaliforníufylki frá árinu 1997.
“We didn’t find any evidence that increased access to the Internet led to improved test scores,” Jonathan Guryan, associate professor of economics at the university’s Graduate School of Business, said.
Þegar Guryan var inntur um ástæður þess að Netið hefði svo takmörkuð áhrif á námsárangur sagði hann að hugsanlega væri ekki til staðar þekking innan skólanna á því hvernig tæknin kæmi best að notum, eða þá að Netið stuðli einfaldlega ekki að betri árangri á prófum.
“Could there have been a more useful way to spend that money? I don’t think we have the final answer to that,” he said. “The Internet could in the future turn out to be a very effective way to improve test scores. We just don’t have any indication of that yet.”
Lesa má um niðurstöður rannsóknarinnar í greininni “World Wide Wonder?” tímaritinu Education next.
Heimild: techLearning (innskráningar krafist)


