Wikipedia alfræðiritið og önnur wiki samvinnuverkefni
Föstudaginn 30. desember kl. 10:00 verður Salvör Gissurardóttir með netfyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands Í þessum fyrirlestri verður skoðað hvernig ný tegund af samvinnu og ritun ryður sér til rúms með wiki. Sérstaklega verður fjallað um alfræðiritið Wikipedia www.wikipedia.org Skoðað verður hvernig wiki getur nýst í námi og kennslu, sjá nánar á http://www.esjan.net/wiki
Þessi fyrirlestur verður á Netinu og þú getur hlustað á hann í nettengdri tölvu og tekið þátt í umræðum ef tölvan er rétt uppsett.
Til að hlusta á fyrirlesturinn þarf að fara í fyrirlestrasal KHÍ á Netinu
- Fara á slóðina http://wimba.skyrr.is
- Smella á “Participant login”
- Slá þar inn nafnið þitt og smella á Enter
- Ef þú hefur ekki áður farið inn í Horizon Wimba þarf að athuga uppsetningu á tölvunni þinni (Setup Wizard), quicktime og java þarf að vera á tölvunni og leyfa þarf pop-up glugga. Setup Wizard athugar þessa uppsetningu og setur inn þau kerfi sem vantar en ef þú hefur einu sinni sett þetta upp þá má smella beint á “Click here” to enter Live Classroom
- Þá kemur listi yfir hvaða fyrirlestraherbergi eru opin.
- Smelltu á “KHI” til að fara inn í netfyrirlestrasal KHÍ.
- Þegar fyrirlestur byrjar sérðu glærur og heyrir rödd fyrirlesara. Þú getur tekið þátt í umræðum með því annað hvort að skrifa inn í textaglugga neðst á skjánum eða smella á TALK hnappinn og halda honum niðri á meðan þú talar.



December 29th, 2005 at 6:15
Virkar þetta?