Ágætt dæmi um samvinnu með aðstoð Flickr eru svo kallaðir hópar (groups) sem stofnaðir eru í kringum sérstakt málefni eða viðfangsefni, en hópar gera Flickr mörgum notendum kleift að safna saman myndum á einn stað og fjalla um þær sín á milli með einföldu umræðukerfi. Hvaða Flickr notandi sem er getur stofnað hóp og boðið öðrum notendum að taka þátt og deila með sér myndum. Ótal margir slíkir hópar hafa verið stofnaðir innan Flicker en hér ætla ég sérstaklega að vekja athygli á fuglavef einum þar sem allir þeir sem áhuga hafa á fuglum geta sent inn eigin myndir, skráð samhliða þeim margvíslegar upplýsingar, vísað á áhugaverðar heimildir og tekið þátt í umræðum.
Hópar í Flickr eru ekki einungis einföld leið til þess að halda úti öflugum samstarfsvettvangi á Netinu heldur afar spennandi möguleiki í námi og kennslu þar sem samvinna er oftar en ekki lykillinn að árangri. Með því að nýta Flickr er einfalt að stofna gagnvirka myndabanka þar sem nemendur og kennarar vinna saman að öflun og miðlun hvers kyns upplýsinga með það að markmiði að stuðla að aukinni þekkingu á skapandi og ekki síst afar skemmtilegan máta.
Sjálfsagt er að geta þess að Salvör Gissurardóttir, kennari við KHÍ, hefur sett saman og gert aðgengilegar á Netinu íslenskar leiðbeiningar með Flickr.



