Close

Svona gerum við

Námsefni

2006  // Færslur birtar í2006

Ár Moodle

Ár Moodle

Það er skemmst frá því að segja að árið 2006 hefur reynst Moodle ákaflega gjöfult. Moodle hefur verið mikið í fjölmiðlum á árinu enda frá miklu að segja. Hér er stutt samantekt um það helsta sem vakti athygli mína á árinu: [Translate]

Lesa meira...

10 algeng mistök í vefhönnun

10 algeng mistök í vefhönnun

Jakob Nielsen er einn helsti sérfræðingur samtímans á sviði vefhönnunar og notagildisfræða vefsins. Á hverju ári tekur Nielsen saman lista yfir það sem hann kallar Top tíu mistök í vefhönnun og tekur þar m.a. mið af niðurstöðum umfangsmikilla rannsókna sinna. Hér má sjá hvað helst angrar Nielsen á árinu 2006 þegar vefhönnun er annars vegar: ...

Lesa meira...

Niðurstöður Ecar 2006 eru áhugaverðar en lítið sem kemur á óvart

Niðurstöður Ecar 2006 eru áhugaverðar en lítið sem kemur á óvart

Ecar er heiti á rannsóknarverkefni á vegum Educause þar sem markmiðið er að kanna viðhorf og notkun nemenda á háskólastigi til upplýsingingatækninnar í Bandaríkjunum með það í huga að niðurstöðurnar komi skólastjórnendum og aðilum sem hafa með hagnýtingu upplýsingatækninnar í skólastarfi að gagni. Ecar var fyrst framkvæmd árið 2004 og tóku þá 13 háskólar þátt. ...

Lesa meira...

Hagnýt ráð í hundraðatali

Hagnýt ráð í hundraðatali

Snemma þessa árs óskuðu eLearning Guild samtökin eftir hagnýtum ráðleggingum frá meðlimum sínum hvað varðar val, innleiðingu og umsýslu vefumsjónarkerfa og netbundinna námsumhverfa. Yfir 400 áhugasamir meðlimir svöruðu kallinu og hafa ráðleggingar þeirra nú verið lesnar yfir og flokkaðar og gefnar út í þremur rafritum. [Translate]

Lesa meira...

UCLA velur Moodle

UCLA velur Moodle

University of California, Los Angeles er án nokkurs vafa einn af virtustu háskólum Bandaríkjanna enda fær enginn bandarískur háskóli fleiri umsóknir um námsvist á hverju ári. Hún er því eftirtektarverð sú ákvörðun stjórnenda UCLA að velja Moodle sem netbundið námsumhverfi skólans. [Translate]

Lesa meira...

Gapminder

Gapminder

Einu sinni á ári stendur TED stofnunin fyrir íburðamiklu málþingi þar sem þjóðþekktir einstaklingar og fræðimenn stíga á stokk og halda fyrirlestra um hin ýmsu málefni. Meðal þátttakenda á TED 2006 var sænski fræðimaðurinn Hans Rosling og má með sanni segja að framlag hans hafi vakið verðskuldaða athygli. [Translate]

Lesa meira...

Vefritið eLearning Papers hefur göngu sína

Vefritið eLearning Papers hefur göngu sína

eLearning Papers er vefrit sem nýlega var hrint úr vör að tilstuðlan Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og gefið verður út annan hvern mánuð. eLearning Papers mun innihalda greinar, viðtöl og hvers kyns umfjöllun um efni sem tengist tölvustuddu námi (elearning), en samantekt úr hverri grein verður birt á 19 tungumálum. Íslenska er því miður ekki þar á ...

Lesa meira...

10 Dec Asides | Athugasemdir

Tilnefningar til Edublog verðlaunanna opinberaðar

Tilnefningar til Edublog verðlaunanna opinberaðar

Tilnefningar til hinna árlegu Edublog verðlauna hafa verið birtar. Atkvæðagreiðslu lýkur á miðnætti 16 desember. [Translate]

Lesa meira...

Swivel – YouTube fyrir tölfræði

Swivel – YouTube fyrir tölfræði

Swivel er opin vefþjónusta þar sem þátttakendur deila með sér tölfræðilegum gögnum á svipaðan hátt og notendur YouTube deila með sér myndskeiðum. Fyrirtækið opnaði dyr sínar almenningi í dag og eftir umfjöllun á TechCrunch var aðsóknin slík að vefþjónar þess áttu erfitt með að höndla álagið. [Translate]

Lesa meira...

97% vefsvæða standast ekki lágmarks kröfur um aðgengi

97% vefsvæða standast ekki lágmarks kröfur um aðgengi

Alþjóðdagur fatlaðra var haldinn hátíðlegur þann 3. des. sl. og var yfirskrift dagsins að þessu sinni aðgengi að rafrænum upplýsingum eða “E-accessibility”. Takið eftir að ég nota ekki orðalagið “aðgengi fatlaðra” því traust aðgengi að rafrænum upplýsingum er hagsmunamál okkar allra. [Translate]

Lesa meira...