Viltu kynna þér Podcasting?

Skrifað 03. January 2006
Ein athugasemd frá lesendum

Podcasting er stafræn upptaka af útvörpuðu efni, s.e. útvarpsþætti, viðtali, fyrirlestri eða hvers kyns öðru hljóðrænu efni sem gert er aðgengileg á Netinu til notkunar á stafrænum spilurum. Orðið “Podcasting” varð til í tengslum við hina vinsælu iPod mp3 spilara frá Apple, en íslenskt orð er ekki enn til yfir hugtakið þrátt fyrir að fjölmargar mis áhugaverðar þýðingartilraunir hafi litið dagsins ljós.

Podcasting var valið orð ársins 2005 af ritstjórn New Oxford American Dictionary í kjölfar gríðarlegrar aukningar á notkun þess á árinu og fjölmargir netverjar tóku nýjunginni opnum örmum og hófu hver á fætur öðrum að setja saman stutta þætti, viðtöl og jafnvel kennsluefni á þessu sniði. Apple var ekki lengi að sjá sér leik á borði og í nýjustu útgáfum af iTunes hugbúnaðinum og iPod spilurum er að finna stuðning við Podcasting. Óhætt er að segja að fyrirtækið hafi þar veðjað á réttan hest, enda er iTunes ein vinsælasta leiðin í dag til þess að gerast áskrifandi að áhugaverðum Podcasting með lítilli fyrirhöfn.

Í nýlegri könnun frá fyrirtækinu Podtrac, sem fylgist með notkun á þessu sviði, kemur í ljós að Podcast hlustendahópurinn er tiltölulega fámennur og samanstendur mestmegnis af karlmönnum. Í sambærilegri könnun Mediaweek kom í ljós að um þriðjungur Netverja þekkti hugtakið Podcasting og svipaður fjöldi hafði hlustað á slíkt, þar af var hlutfall karlmanna 78%.

Persónulega er ég sannfærður um ágæti Podcasting en eins og þessar tölur gefa til kynna er óhætt að fullyrða að enn er langt í land með að notkun þess geti talist almenn. Podcasting hefur upp á margt að bjóða fyrir kennara sem vilja nýta sér upplýsingatæknina í þágu nemenda og t.a.m. nýta nú þegar nokkrir virtir háskólar þessa tækni til að dreifa fyrirlestrum á Netinu.

Þeir sem vilja kynna sér Podcasting nánar er bent á eftirfarandi vefi.


Tengt efni

  • No Related Post

1 athugasemd við “Viltu kynna þér Podcasting?”

  1. Árni Hermann skrifar:

    Bendi einnig á smá tengt efni um skýrslu frá Yahoo um dreifingu RSS ef kalla má þetta glæsilega plagg skýrslu: http://publisher.yahoo.com/rss/RSS_onepage1004.pdf

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni