Fjarnám og félagslegur hugbúnaður
Terry Anderson við Athabasca háskólann í Kanada flutti mjög áhugaverðan fyrirlestur (ath. pdf skjal) á árlegri ráðstefnu “Open and Distance Learning Association of Australia” í nóvembermánuði síðasta árs. Í fyrirlestrinum, sem hann nefndi “Distance learningt – Social software’s killer ap?”, fjallaði Anderson um félagslegan hugbúnað (social software) og þá ótalmörgu spennandi möguleika sem slíkur hugbúnaðar hefur upp á að bjóða í námi og kennslu.
Í greininni notar Anderson hugtakið “Educational social software” yfir félagslegan hugbúnað sem kemur sérstaklega að notum í akademísku umhverfi og tilgreinir helstu eiginleika sem hugbúnaður verður að vera gæddur til að flokkast sem slíkur. Það er ekki ætlun mín hér og nú að fjalla í smáatriðum um þá flokkun en ég mæli eindregið með þessari grein. Ekki síst vegna þess að í greininni greinir höfundur frá þróunarverkefni sem um þessar mundir er verið að vinna við Athabasca háskólann og tengist Elgg námsumhverfinu (learning landscape) sem ég hef áður líst ánægju minni með.
Það er sjálfsagt að endurtaka það hér og nú að innan Fjölbrautaskólans í Breiðholti verður lagt að stað með svipað þróunarverkefni nú í vor þar sem ætlunin er að nýta Elgg sem undirstöðu félagslegs tengslanets nemenda í völdum áföngum skólans. Markmiðið með þessu verkefni er fyrst og fremst að kanna möguleika Elgg kerfisins og þá með það í huga að innleiða það á landsvísu. Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni og mun að sjálfsögðu kynna það betur þegar tækifæri gefst. Kannski UT2006 sé rétti vettvangurinn fyrir slíkt. Ég endurtek líka boð mitt um samstarf. Ef einhver hefur áhuga á því að taka þátt í þessu tilraunaverkefni með okkur í FB þá er ekkert einfaldara en að senda á mig tölvupóst.


