Moodle á BETT
Nú styttist óðum í að BETT 2006 upplýsingatæknisýningin hefjist, en hún mun standa yfir dagana 11. – 14. janúar nk í Olympía höllinni í London. Það er alltaf gaman að koma á BETT en sýningin verður sérstaklega áhugaverð þetta árið í mínum huga þar sem nokkrir áhugasamir Moodle notendur hafa tekið sig saman og munu kynna námsstjórnunarkerfið fyrir sýningargestum.
Ég vil því nota þetta tækifæri og vekja sérstaka athygli á bás SW154 og get bætt því við að sjálfur mun ég standa vaktina á Moodle básnum frá kl. 12:00 á hádegi til 13:00 föstudaginn 13. (hafði reyndar ekki gert mér grein fyrir þessari dagsetningu) Látið endilega sjá ykkur sem flest.


