Google býður PC notendum reyndar enn betur því fyrirtækið hefur gefið svo kallaðan Google Pack, sem er samsafn 9 forrita. Pakkanum fylgir sérstakt forrit sem einfaldar allar uppfærslur á þessu forritasafni. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir hugbúnaðinn sem pakkinn inniheldur. Satt best að segja hefur þetta framtak Google ekki vakið mikla athygli og þykir almennt frekar óspennandi, þó ekki séu allir sammála því.
- Google Earth
- Google Desktop
- Picasa
- Google Toolbar fyrir IE
- Google Pack skjáhvílir
- Firefox (með Google toolbar)
- Ad-Aware Personal
- Norton Antivirus 2005 Special Edition (6 mánaða áskrift)
- Adobe Reader 7


