Moodle er annað og meira en vel heppnuð hugbúnaðarlausn því eins og svo margur annar opinn hugbúnaður þá grundvallast Moodle á öflugu samfélagi notenda. Og það sannaðist með eftirminnilegum hætti á BETT í ár hversu sterk slík samvinna getur orðið þegar allir leggjast á eitt. Sjaldan hef ég orðið vitni að öðrum eins áhuga og drifkrafti og meðal þeirra fjölmörgu aðila sem stóðu að þátttöku Moodle á BETT 2006. Og ég minni á að allir sem að komu gáfu vinnu sína og lögðu jafnvel til fjármuni svo þessi draumur gæti orðið að veruleika.
Ég efast ekki um að vel heppnuð þátttaka á BETT eigi eftir að hafa góð áhrif á notkun og dreifingu Moodle innan breska skólakerfisins. Sjálfur ræddi ég við fjölda aðila sem þegar eru að nota kerfið og allir voru þeir á einu máli um ágæti þess. Hvað okkur hér á Íslandi varðar þá eru margir spennandi hlutir í farvatninu. Nægir þar að nefna Covcell rannsóknarverkefnið íslenska sem styrkt er af Evrópusambandinu. Það er Matthew Whelpton dósent í málvísindum við enskuskor Hugvísindadeildar Háskóla Íslands sem leiðir Covcell verkefnið en að verkefninu koma einnig erlendir háskólar og íslenska hugbúnaðarfyrirtækið ODG.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem ég tók á BETT 2006. Hér má finna flickr hóp (group) sem Drew Barry, einn forsvarsmanna Moodle á BETT 2006, hefur stofnað um myndir sem á einn eða annan hátt hafa með að gera þátttöku Moodle á sýningunni. Að sjálfsögðu er öllum heimilt að bæta sínum myndum þarna inn.


