Námsefni í Photoshop á Google Video

Skrifað 20. January 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Í vetur kenni ég stafræna myndvinnslu við UT-braut Fjölbrautaskólans í Breiðholti eins og svo oft áður. Kennslan í ár verður hins vegar með dálítið öðru sniði en venjulega þar tímum í töflu hefur verið fækkað gegn meiri sjálfstæðri vinnu nemenda á Netinu. Að sjálfsögðu nýti ég Moodle námsstjórnunarkerfið sem er undirstaða kennsluvef skólans, sem finna má á slóðinni dreifnam.is.

Í því skyni að koma til móts við nemendur mína og um leið nýta kosti upplýsingatækninnar eins vel og kostur er hef ég farið þá leið að setja saman talsett myndskeið þar sem ég veiti leiðbeiningar við lausn þeirra verkefna sem nemendur vinna í áfanganum. Myndskeiðin vinn ég í Camtasia (útgáfa 3.1 er nýkomin út) hugbúnaðinum en hann hentar einstaklega vel til þess að taka upp aðgerðir á skjá og gefa út sem myndskeið á Netinu. Í mínu tilfelli hentar Camtasia betur en forrit eins og Viewlet Builder eða Captivate, sem einnig koma að góðum notum við gerð kennsluefnis og leiðbeininga fyrir Netið. Ástæða þess er helst sú að ég er að kenna á Photoshop myndvinnsluforritið og Camtasia tekur upp allar aðgerðir á skjá eins og um væri að ræða myndbandsupptökuvél á meðan Viewlet Builder og Captivate taka einstaka skjáskot sem síðan eru samþætt með hreyfingum músarbendilsins, texta, tali og/eða talblöðrum.

Myndskeið sem unnin eru í Camtasia geta hæglega orðið nokkuð stór, sérstaklega þegar þau eru talsett og birt í nokkuð góðum gæðum. Því vaknaði sú spurning hjá mér hvort ég gæti sparað mér kostnað og umstang við hýsingu og dreifingu með því að nýta ókeypis þjónustur eins og Google Video eða YouTube. Ég hef ágætis reynslu af YouTube og ákvað því að reyna fyrst að nota Google Video.

Google Video er, eins og komið hefur fram, ókeypis þjónusta þar sem allir sem áhuga hafa geta sent inn stafrænar upptökur og gert aðgengilegar á vefnum video.google.com. Engin takmörk eru á stærð myndskeiðanna, en þess má geta að YouTube takmarkar skráarstærð við 100MB. Það er mjög einfalt að fá aðgang að Google Video og notendur sem þegar hafa Google notendanafn og lykilorð, t.d. vegna gmails tölvupósts, geta nota sama aðgang á Google Video. Sérstakur hugbúnaður er sóttur og notaður til þess að hlaða efni á vefinn. Google Video tekur við öllum algengustu skráargerðum og átti ég ekki í nokkrum vandræðum með að hlaða inn efni sem unnið var í Camtasia. Efnið var á AVI sniði og þrátt fyrir að vera yfir 120MB að stærð tók ekki langan tíma að hlaða því inn. Þegar því var lokið tók hins vegar við nokkurra daga bið þar sem Google yfirfer öll innsend myndbönd og samþykkir til birtingar. Þetta er bæði kostur og galli. Það er kostur að geta treyst því að óæskilegt efni eigi ekki greiðan aðgang að ókeypis þjónustum eins og Google Video, en það er galli að þurfa að bíða í nokkra daga eftir að innsend skrá sé aðgengileg notendum.


Eftir að Google hefur samþykkt mynband til birtingar á Google Video er ekkert því til fyrirstöðu að gera nemendum viðvart um tilvist þess. Það má gera með einfaldri krækju eða með því að sækja kóða á vef Google og samþætta myndskeiðið hvaða vef sem er, eins og gert hefur verið hér að ofan. Notendur geta einnig sótt viðkomandi myndskeið og spilað á PC eða Macintosh tölvum, Sony PSP leikjatölvunni eða iPod frá Apple. Til gamans prufaði ég efnið á iPodspilara og er satt best að segja mjög spenntur fyrir slíkum möguleikum. Í dag er staðan hins vegar sú að fæstir nemendur eiga slíkan tækjabúnað hvað sem síðar verður.

Ég er nokkuð ánægður með þessa tilraun fram til þessa. Ég er ekkert allt of ánægður með gæði efnisins eftir að það hefur verið þjappað til birtingar á Google Video en það er hins vegar vel nothæft í kennslu og nemendur hafa ekki kvartað ennþá. Ég geri sama efni einnig aðgengilegt á tölvukerfi skólans þannig að nemendur geta sótt það þangað í fullum gæðum. Ég hef ekkert á móti því að gera þetta kennsluefni öllum aðgengilegt á Google Video en sjálfsagt er að taka það fram að flest verkefnin krefjast þess að nemendur notist við ákveðnar myndskrár við lausn þeirra og þær skrár fylgja ekki, enda eru þær hluti af þeim kennslubókum sem notaðar eru.

Ég er staðráðinn í að kanna möguleika stafræns myndefnis enn frekar og
næsta skref er að gera það aðgengilegt sem vodcasting (Podcasting fyrir myndskeið) á iTunes og öðrum slíkum þjónustum.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni