Hér að neðan má sjá Frappr kort Moodle notenda víðsvegar um heiminn, Enn sem komið er hafa einungis örfáir Moodle notendur gerst meðlimir í þessu samfélagi, en vonandi rætist úr því með tíð og tíma. WorldMoodlers nefnist þetta samfélag sem reyndar er ekki eina samfélag Moodle notenda á Frappr. Breskir Moodle notendur hafa sameinast hér og spænskir hér.
Ég verð að viðurkenna að ég er dálítið opinn fyrir nýjungum eins og Frappr þessa dagana. Ég er sannfærður um notagildi þeirra í námi og kennslu og á örugglega eftir að nýja mér þessa þjónustu í framtíðinni. Sjálfur hef ég skráð mig sem meðlim á WorldMoodlers og hvet að sjálfsögðu aðra íslenska Moodle notendur til að gera slíkt hið sama.


