ELGG 0.4 lítur dagsins ljós

Skrifað 24. January 2006
Ein athugasemd frá lesendum

Ný útgáfa af náms- og samskiptakerfinu ELGG var opinberuð þann 23. janúar sl. Um er að ræða viðamikla uppfærslu sem hefur að geyma margvíslegar endurbætur ásamt spennandi nýjungum. ELGG er einstaklingsbundið námsumhverfi þar sem markmiðið er að skapa notendamiðaðan, félagslegan vettvang sem samþættir lausnir eins og vefdagbækur (blogg), ferlimöppur (e-portfolios) og wiki. ELGG er ekki hefðbundið námsstjórnunarkerfi, en um þessar mundir er unnið að samþættingu þess og Moodle (og fleiri kerfa reyndar), en ýmsir hafa kosið að keyra ELGG samhliða slíkum kerfum.

Ég hef áður fjallað um ELGG á þessum vettvangi en ég hef uppi áætlanir um að koma á miðlægri uppsetningu á kerfinu og bjóða skólum í landinu aðgang. Nú þegar hefur ELGG verið sett upp á vefþjóni við Fjölbrautaskólann í Breiðholti þar sem kerfið verður prufukeyrt nú á vorönn. Ég hef verið að bíða eftir þessari nýju útgáfu þar sem hún inniheldur m.a. nýtt sniðmáts-kerfi sem einfaldar alla vinnu við útlitsmótun.

Allar frekari upplýsingar um ELGG má finna hér.


Tengt efni

  • No Related Post

1 athugasemd við “ELGG 0.4 lítur dagsins ljós”

  1. Eyþór Benediktsson skrifar:

    Ég hef áhuga á að fylgjast með þróuninni í ELGG og Moodle. Fylgdist með fyrirlestri þínum um Moodle á UT í fyrra og eftir námskeiðið sem ég var á hjá Salvöru (NKN)var ég ákveðinn í að prófa. Setti upp Moodle vef í Grunnskólanum í Stykkishólmi og keyrði eitt námskeið sjálfur. Svo hef ég því miður ekki gefið mér tíma til að vinna meira í því nú á vorönninni. Vildi bara senda inn komment hér til þess að þakka þér fyrir að vera á tánum svo kallar eins og ég geti fylgst með og líka notið góðs af frumkvöðlastarfinu.

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni