Magnað maður magnað
Google Earth er endalaus uppspretta fróðleiks og skemmtunar og ég segi það enn og aftur að þetta er kjörið verkfæri til að nota í kennslu á öllum skólastigum. Hér að neðan vísa ég á nokkrar áhugaverðar slóðir sem ég gróf upp á vefnum Google Earth Blog og er hreinasta gullnáma um allt sem snýr að þessu magnaða forriti.
Í flestum tilfellum er verið að vísa í KMZ eða KML skrár sem eru skráarsniðin sem Google Earth notar. Einfaldast er reyndar að opna sjálfa KMZ eða KML skránna með því að smella á hana (eða krækjuna sem vísar á hana) og þá sér Google Earth um afganginn. Stundum er vísað beint á einstaka umræðuþráð á umræðuvettangi Google Earth notenda og þá er einfaldast að smella á kræjuna “Open this Placemark” til þess að opna viðkomandi skrá í Google Earth.
- World Wide Panorama 2005
Hér má finna yfirlit yfir staðsetningar á fjölda stórkostlegra víðmynda (panorama) sem teknar hafa verið um allan heim. Þarna má m.a. finna þrjár gullfallegar myndir frá Íslandi. Athugið að nauðsynlegt er að hafa Quicktime uppsett til að skoða þessar myndir. - Sir Ernest Shackleton
Árið 1914 lagði landkönnuðurinn Ernest Shackleton í örlagaríkan leiðangur á Suðurheimskautslandið. Shackleton dreymdi um að verða fyrstur manna til þess að fara þvert yfir suðurheimskautslandið (Antartica) en sá draumur breyttist í matröð þegar skip hans festist í ísnum. Þurfu Shackleton og menn hann að þrauka 10 mánaða langan heimskautavetur áður en skipið losnaði úr ísnum. Nú er hægt að fræðast um þetta magnaða ævintýri á einstakan hátt með aðstoð Google Earth. Ef þið hafið sérstakan áhuga á þessu viðfangsefni þá er einnig hægt að fræðast um leiðangur Amundsens á Google Earth hér, en Amundsen komst fyrstur manna á suðurpólinn í leiðangri sínum árin 1911-1912. - Fregata andrewsi
Freigátufugl er stórvængjaður sjófugl af Freigátufuglaætt (Fregatidae) og eru víst skyldur skarfinum. Vísindamenn merktu kvenfugl af tegundinni Fregata andrewsi sem er í útrýmingarhættu og fylgust með ferðum hans með aðstoð gervitungla. Hér má finna ítarlegar upplýsingar um ferðalag fuglsins, sem gefið var nafnið Lydia, auk almennra upplýsinga um Freigátufugla og lifnaðarhætti þeirra. - Loftsteinar
Ekki veit ég hversu algengt áhugamál loftsteinar eru, en ef þú ert einn af þeim sem heillast af þessu fyrirbæri þá er þetta kjörið fyrir þig. Smelltu á krækjuna hér að ofan til að opna KMZ skrá sem inniheldur staðsetningar á helstu loftsteinum sem lent hafa á jörðinni og vísanir á nánari upplýsingar á Wikipedia um hvern og einn þeirra. Frekari upplýsingar um loftsteina má svon finna á Vísindavefnum. - Leikrit Shakespeare
Það eru engin takmörk fyrir þeim notum sem hafa má af Google Earth. Ágætt dæmi um það er næsta skrá sem hefur að geyma yfirlit yfir næstum því alla (vantar held ég 2 staði) staði sem minnst er á í leikritum Shakespeare. Frekari upplýsingar um Shakespeare eru að finna á vef Fræðsludeildar Þjóðleikhússins.


