Apple kynnir iTunes U, en viðbrögð netverja eru blendin

Skrifað 01. February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Apple fyrirtækið hefur opinberað nýja þjónustu sem gengur undir heitinu iTunes U og er sérstaklega sniðin að framhalds- og háskólum. iTunes U gerir skólastofnunum kleift að hýsa og dreifa fyrirlestrum er öðru námstengdu á hljóð og/eða myndrænu formi á Netinu og nýta til þess sömu tækni og Apple hefur þróað til þess að dreifa og selja tónlist með afar góðum árangri. Þjónustan er án endurgjalds.

Þróun iTunes U er bráðsniðug leikflétta hjá Apple og án efa liður í frekari markaðssetningu fyrirtækisins á iPod spilurunum og tækni sem þeim tengist. Apple er nú þegar markaðsráðandi á sviði mp3 spilara en sjálfsagt er að hamra járnið á meðan heitt er. Vafalítið hefur það haft áhrif á þessa ákvörðun Apple, að einstaka skólar hafa undanfarið verið að gera tilraunir með slíka spilara í námi og kennslu og þrátt fyrir misvísandi niðurstöður þá þykir hagnýting þeirra hafa uppá að bjóða ýmsa áhugaverða möguleika í námi og kennslu. Skólar munu því vafalítið margir hverjir taka iTunes U fagnandi. Endurgjaldslaus hýsing og markviss og örugg dreifing efnis á Netinu á þann hátt sem höfðar sterklega til nemenda hlítur að vera eftirsóknarvert. Síðast en ekki síst þá er iPod mikið tískufyrirbæri og með

Stanford háskólinn í Bandaríkjunum er fyrsti skólinn til þess að nýta iTunes U en þar hefur þjónustan verið prufukeyrð undanfarna mánuði í nánu samstarfi við Apple. Allir sem áhuga hafa geta í dag sótt valda fyrirlestra kennara við Stanford af Netinu og fært yfir á iPod spilara sína í gegnum iTunes U.

Fréttatilkynning Apple og þróunarvinna þeirra með Stanford háskólanum hefur vakið mikla athygli og er óhætt að segja að fjörlegar umræður hafi skapast á Netinu um útspil Apple. Og eins og gefur að skilja eru skoðanir manna skiptar. Fjölmargir hafa líst yfir mikilli ánægju með framtakið á meðan aðrir hafa haft uppi efasemdir um ágæti þess. Það sem einna helst vefst fyrir efasemdarmönnunum er sú staðreynd að Apple er auðvitað fyrst og fremst að koma eigin vörum og eigin stöðlum á framfæri innan skólakerfisins. Og þessi tækni og þessi skráarsnið og staðlar eru ekki nægjanlega opnir að mati margra sem óttast að þar með kunni skólar og nemendur að verða of háðir einum ákveðnum framleiðanda. Því þrátt fyrir að hvaða PC eða Makkanotandi sem er geti sótt iTunes U og hlustað á fyrirlestra eða annað efni í tölvunni þá gegnir iTunes U einungis iPod spilaranum þegar að því kemur að samþætta efni á tölvu og spilara.

Spurningin er því kannski fyrst og fremst sú hvort skólastofnanir geta réttlætt notkun á tækni sem takmarkar nemendur við not á vörum frá einum framleiðana, nefnilega Apple? Ég spyr?


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni