Artrage er í senn aðgengilegt og einfalt í notkun sem gerir það sérlega heppilegan valkost fyrir kennara sem hafa áhuga á því að nýta teikniforrit í kennslu sinni. Artrage 2.0 inniheldur 12 teikniverkfæri og er líkt og fyrirrennari sinn hannað með það í huga að þessi verkfæri hermi eins vel eftir raunverulegum fyrirmyndum sínum og kostur er. Það má einnig breyta áferð “pappírsins” sem teiknað er á og sækja t.a.m. ljósmynd og nota sem fyrirmynd þegar teiknað er. Artrage er
Artrage 2.0 er fáanlegt í tveimur útgáfum, ókeypis útgáfu sem inniheldur alla kosti Artrage 1.0 og nokkrar endurbætur og fulla útgáfu (Full Edition) sem kostar 19.95 dollara eða tæplega 1300 kr. íslenskar. Smelltu hér til þess að bera saman kosti beggja útgáfanna. Það er ekki nema nokkurra mínútna verk að kaupa Artrage í gegnum Netið og er óhætt að fullyrða að þeim peningum er vel varið. Að sjálfsögðu er líka kjörið að sækja ókeypis útgáfuna sem stendur vel fyrir sínu.


