Auglýst eftir námsskrárdrögum!

Skrifað 08. February 2006
Flokkur: Menntamál
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég auglýsi hér með eftir drögum að námskrám grunn- og framhaldsskóla í upplýsingatækni ásamt meðfylgjandi greinargerðum.

Þann 22. desember sl. birti menntamálaráðuneytið á vef sínum fréttatilkynningu undir yfirskriftinni Breytt námsskipan til stúdentsprófs þar sem kynntur var vefurinn namsskipan.is sem hefur að geyma námskrárdrög bæði fyrir grunn- og framhaldsskóla til kynninga og athugasemda. Í tilkynningunni var einnig tekið fram að vonast væri eftir því að kennarar og aðrir sem láta sig skólastarf varða sendi athugasemdir og ábendingar varðandi námskrárnar til ráðuneytisins fyrir 28. janúar 2006. þessi frestur var síðan framlengdur um mánuð. Í kjölfar þessa rituðu skólamálanefndir FG og FF stjórnum fagfélaga bréf þar sem lögð var áhersla á að fagfélög og kennarar yfirfari námskrárnar og skili inn athugasemdum og ábendingum sínum við drögin.

Það skýtur því óneitanlega skökku við, að í dag, miðvikudaginn 8 febrúar, skuli enn vanta inn á vefinn namskipan.is drög að námsskrám í upplýsingatækni fyrir grunn- og framhaldsskóla (og reyndar einnig í listgreinum). Vonandi verður bætt úr þessu hið fyrsta.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni