En eins og áður segir þá er í dag vika liðin frá fyrirspurn minni og enn hefur ekkert svar borist. Ekki veit ég hvað veldur. Kannski þykir tilefnið ekki nógu merkilegt eða Sigþór einfaldlega of önnum kafinn til að svara mér. Ef til vill á ég enga heimtingu á að fá svör við þessum spurningum mínum. Eða getur verið að þetta komi okkur kennurum ekkert við? Það er erfitt að segja. Samt get ég ekki ímyndað mér hvernig svona verkefni á nokkurn tíman að geta heppnast ef framkvæmdaraðilarnir, þ.e. kennarar í grunnskólum Reykjavíkur, fá ekki tækifæri til þess að vera með frá upphafi. Ég ítreka því spurningar mínar og vænti að sjálfsögðu svara.


