Pivot er stórskemmtilegur og skapandi hugbúnaður sem gerir notendum kleift að setja saman einfaldar fígúrur og stutt myndskeið þar sem hægt er að láta fígúrurnar hreyfast að vild. Pivot er einfalt í notkun og hentar börnum á leikskólaaldri jafnt sem nemendum á grunnskólastigi.

Pivot er kjörið verkfæri til þess að búa til einfaldar teiknimyndir sem er áhugavert viðfangsefni í skólastarfi. Nemendur geta skapað eigin persónur með sérstökum teiknihluta innan forritsins eða notast við tilbúnar fígúrur sem fylgja forritinu. Fígúrurnar eru með liðamótum og er hægt að hreyfa þá líkamshluta sem liðamótin tengja saman með því einu að draga þá til með músinni. Smellið hér tl að sjá skýringarmynd af notendaviðmóti Pivot.
Í Pivot er einfalt að vinna með myndaraðir þar sem hver einstök mynd er örlítið frábrugðin þeirri sem á undan fer. Myndaraðir eru svo hægt að nota til að skapa einfaldar hreyfimyndir sem svo má vista á gif sniði og setja á Netið.
Pivot má sækja á Netið án endurgjalds.
Technorati merkingar: pivot, animation, freeware, ókeypis, hreyfimyndir



Vá ertu ömó í pivot farðu á youtube og skrifaðu brendan pivot og þar sérðu videoin sem ég hef gert