Einfaldar hreyfimyndir með Pivot

Skrifað 10. February 2006
Flokkur: Myndrænt
2 Athugasemdir frá lesendum

Pivot er stórskemmtilegur og skapandi hugbúnaður sem gerir notendum kleift að setja saman einfaldar fígúrur og stutt myndskeið þar sem hægt er að láta fígúrurnar hreyfast að vild. Pivot er einfalt í notkun og hentar börnum á leikskólaaldri jafnt sem nemendum á grunnskólastigi.

Pivot

Pivot er kjörið verkfæri til þess að búa til einfaldar teiknimyndir sem er áhugavert viðfangsefni í skólastarfi. Nemendur geta skapað eigin persónur með sérstökum teiknihluta innan forritsins eða notast við tilbúnar fígúrur sem fylgja forritinu. Fígúrurnar eru með liðamótum og er hægt að hreyfa þá líkamshluta sem liðamótin tengja saman með því einu að draga þá til með músinni. Smellið hér tl að sjá skýringarmynd af notendaviðmóti Pivot.

Í Pivot er einfalt að vinna með myndaraðir þar sem hver einstök mynd er örlítið frábrugðin þeirri sem á undan fer. Myndaraðir eru svo hægt að nota til að skapa einfaldar hreyfimyndir sem svo má vista á gif sniði og setja á Netið.

Pivot má sækja á Netið án endurgjalds.

Technorati merkingar: , , , ,


Related Post



2 athugasemdir við “Einfaldar hreyfimyndir með Pivot”

  1. sfjalar » Mest lesið í mars skrifar:

    [...] Einfaldar hreyfimyndir með Pivot Pivot er stórskemmtilegur og skapandi hugbúnaður sem gerir notendum kleift að setja saman einfaldar fígúrur og stutt myndskeið þar sem hægt er að láta fígúrurnar hreyfast að vild. [...]

  2. Pivot82 skrifar:

    Vá ertu ömó í pivot farðu á youtube og skrifaðu brendan pivot og þar sérðu videoin sem ég hef gert

Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman