Comments on: Hvers vegna valdi Reykjavíkurborg Blackboard? Svör hafa borist.

By: Steinn E. Sigurðarson
Til Sigþórs;

Já, WebCD, er það eitthvað nýtt kerfi semsagt?

Ég leyfi mér að áætla að þrátt fyrir ítrekaða notkun á hugtakinu “WebCD”, þá sé hér frekar átt við þekkta kennslukerfið WebCT.

Hvað stendur í vegi fyrir Reykjavíkurborg að gera samning við Moodle Inc? Eða eitthvert af þeim fyrirtækjum sem eru skráðir Moodle Partners og þjónusta Moodle um allan heim — ég veit ekki til þess að Blackboard sé íslensk smíði, svo það getur varla verið tiltökumál að gera frekar samning við eitt fyrirtæki á alþjóðamarkaði frekar en annað?

Var þetta það eina sem stóð í vegi fyrir athugun Moodle kerfisins? Sá misskilningur að ekki væri hægt að gera þjónustusamning við fyrirtæki sem gæti brugðist við vandamálum sem komið gætu upp?

Svör við næstu punktum eru flestöll ótengd athugasemdum þeim sem ég myndi gera, eins og t.d. hvort að innkauparáð Reykjavíkur samþykkti kaupin á Blackboard frekar en WebCT, nefndin samþykkir líklega bara ódýrasta og besta kost sem henni er kynntur — en Moodle (og önnur frjáls kerfi, s.s. Sakai og Plone) var ekki haft með í reikningnum.

Varðandi þýðingu á BlackBoard, þá reikna ég með að einhver þurfi að borga fyrir þá þýðingu, og þar sem a.m.k. þrjú önnur kerfi eru nú þegar til á Íslensku þá verður kostnaður við þýðingu á BlackBoard að teljast stór galli við innleiðingu kerfisins. Þrátt fyrir að “grafísk tól” séu til, þá eru þýðingar ekki ókeypis, og þar að auki eru til grafísk tól til að þýða flest ef ekki öll frjálsu kennslukerfin.

Varðandi þjálfun, jú vissulega verður þjálfun, takk fyrir að láta okkur vita af því, en hver verður kostnaðurinn við það? Þessi þjálfun og kostnaður við hana (ásamt þeim kostnaði sem ég hef spurt um hér að undan) mun hjálpa til við að mynda skiptiþröskuld, þ.e. ef á daginn kemur að annað kerfi myndi henta betur, þá munu menn vera tregir til að afskrifa þessar fjárfestingar, og kennarar munu vera tregir til að vilja læra á nýtt kerfi.

Næsti punktur á við um sameiningu WebCT og BlackBoard, og miðað við það sem liggur þar fyrir er BlackBoard betri kostur en WebCT, gott að þið rannsökuðuð það.

Ég vona svo sannarlega að komið verði til móts við fatlaða nemendur og nemenda með sértæka námsörðugleika, og að kerfið leyfi breytingar á þeim grundvelli sem þarf — þar sem kerfið er lokað finnst mér ekki tryggt að slíkt sé hægt vandræðalaust.

Varðandi síðasta punktinn, þá heldurðu ennþá áfram að réttlæta hví BlackBoard var valið en ekki WebCT. Það er greinilega stór misskilningur í gangi hér, þar sem að WebCT er á leiðinni út, þetta vita allir sem koma nálægt þessum geira, og athugasemdir fólks hafa ekki beinst að því, heldur afhverju opnar, frjálsar lausnir sem hægt er að aðlaga ótakmarkað að íslenskum aðstæðum, stöðlum, osfrv, og nota ótakmarkað án leyfisgjalda virðast ekki hafa verið skoðaðar í þessu samhengi?

Í þessu svari þínu þá kemur ekki fram nein skýring á því afhverju Moodle (eða önnur opin, frjáls kerfi) hafi ekki verið í mengi þeirra kerfa sem skoðuð voru. Einnig kemur ekkert fram um kostnað, nema það að innkauparáð hafi samþykkt kaupin — en magnað! Þess utan kemur ekkert fram hverskonar stuðning þið ætlist til að fá frá framleiðendum hugbúnaðarins, né hvað það mun kosta.

Í stuttu máli sagt eyðirðu miklum tíma í að útskýra að Blackboard sé betra en WebCT. Takk, þetta var sannfærandi.

Ég sendi Stefáni Jóni tölvupóst fyrir viku síðan sem ég hef ekki fengið svar við, en læt fylgja hér að neðan, því í póstinum spyr ég spurninga sem ég væri enn til í að fá svör við;

Komdu sæll Stefán,

Það væri mjög áhugavert að heyra skoðun þína á máli sem hann Sigurður                                                   Fjalar talar um á vef sínum hér;

http://sfjalar.net/?p=82

Sérstaklega væri áhugavert að heyra hvað þótti mæla gegn Moodle kerfinu                                                 sem hann minnist á, en það er frjáls og opinn hugbúnaður sem allir mega                                                nota í hvaða tilgangi sem er að kostnaðarlausu.

Í haust tilkynnti Open University að þar skildi Moodle kerfið tekið upp;                                               http://www3.open.ac.uk/events/7/2005118_40887_nr.doc

Einnig væri áhugavert að vita hverskonar stuðning við staðla er hægt að                                                 tryggja með notkun Blackboard, sem er lokað kerfi þar sem allri þróun er stýrt af einu fyrirtæki, ólíkt Moodle og öðrum frjálsum, opnum kerfum                                                   þar sem hver sem er má bæta við hvaða þeim stuðningi sem þarfnast er.

Varðandi staðlana, þá sagði mér hún Sigrún Gunnarsdóttir hjá                                                            staðlaverkefni Menntamálaráðuneytisins, að ekki hefði verið leitað                                                      ráðlegginga hjá þeim varðandi staðla.

Ef þú hefur einhverntímann áhuga á að ræða um tækni eða hugbúnað,                                                       sérstaklega í menntageiranum, eða læra meira um opinn/frjálsan hugbúnað,                                                kosti hans og galla (sem eru engir fyrir stofnanir eða notendur                                                         hugbúnaðarins), þá væri það mín ánægja að ræða við þig um þessi mál.

kv.

Steinn E. Sigurðarson