Google býður skólum að hýsa tölvupóst þeirra

Skrifað 13. February 2006
Flokkur: Google
Engar athugasemdir frá lesendum

Google kynnti nýlega á Googleblog vefnum áhugaverða tilraun sem fyrirtækið og San José City College skólinn í Bandaríkjunum standa í sameiningu að um þessar mundir. Um er að ræða prufukeyrslu á nýrri þjónustu sem Google hyggst bjóða á næstunni þar sem fyrirtækið tekur að sér að hýsa tölvupóst nemenda og starfsfólks án endurgjalds. Google mun nýta Gmail þjónustuna til þessa verks, en skólar munu þó geta notast við eigin lén ólíkt öðrum Gmail. notendum. Hver notandi hefur til umráða tveggja gígabæta geymslurými og Google mun einnig bjóða kerfisstjórum öflugt verkfæri til að sýsla með netföng og póstlista.

Ekki veit ég hvort íslenskum skólum mun standa þessi þjónusta til boða, en Google biður alla sem áhuga hafa að hafa samband.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni