Már Örlygsson les dæmisögur Esóps og birtir á Netinu

Skrifað 14. February 2006
2 Athugasemdir frá lesendum

HljóðnemiMár Örlygsson, sérlegur áhugamaður um heimalesnar hljóðbækur, fékk þá hugmynd að það gæti verið sniðugt að lesa dæmisögur Esóps inn á tölvunna og brenna svo á geisladisk fyrir son sinn. Hugmyndin er góðra gjalda verð og til allrar lukku hrinnti Már henni í framkvæmd og það sem meira er hann hefur gert upptökurnar öllum aðgengilegar á Netinu.

Nú þegar er hægt að sækja alls af dæmisögum Esóps á mp3 sniði og er ég ekki í nokkrum vafa að bæði foreldrar og kennarar geta fundið margvísleg not fyrir þetta efni. Lítið er um heimalesnar hljóðbækur á Netinu en þó barst ábending á vef Márs um upplestur á bókinni Bangsímon, í þýðingu Huldu Valtýsdóttur. Það væri gaman að vita hvort lesendur þekkja fleiri dæmi um upplestur á íslenskum bókum sem hægt er að sækja endurgjaldslaust á Netinu. Ég veit að Skólavefurinn býður upp á eitthvað af slíku efni, en það er ekki hægt að sækja án endurgjalds og hið sama má segja um vefinn hljóðbók.is.

Kannski verður þetta framtak Más til þess að fleiri aðilar taki til við að hljóðrita upplestur á bókum og koma á framfæri á Netinu. Það er mikið til af efni sem ekki er lengur verndað af höfundarétti og því löglegt að dreifa á þennan máta. Ef til vill væri hægt að gera eitthvað í líkingu við þetta.

Hér má svo finna upplýsingar um Esóp.

Technorati merkingar: , , ,


Tengt efni

  • No Related Post

2 athugasemdir við “Már Örlygsson les dæmisögur Esóps og birtir á Netinu”

  1. pallih skrifar:

    Takk fyrir tengilinn.

    Ég hef ekki bara lesið Bangsímon, heldur einnig bókina Veröld Busters: http://kaninka.net/pallih/category/verold-busters/

    Hún er að vísu ekki fullbúin - 3 kaflar eftir.

    Og ég hef ekkert í hyggju að stöðva þar.

  2. Már skrifar:

    Hæ. Tvær ábendingar: Ég benti sjálfur á hljóðbókagerðina hans Palla, og sem stendur er ég bara búinn að lesa inn 34 dæmisögur af 144 alls!

    Vandamálið er hins vegar að þetta framtak hjá mér er fullkomlega kolólöglegt. Ég bíð bara eftir að einhverjir höfundaréttarhafar banki upp á hjá mér með feitt hótunarbréf og læti. ;-)
    P.S: Ef einhverjir fleiri luma á heimalesnum hljóðbókum, þá er ég alveg til í að veita þeim hýsingu og/eða aðstoð við BitTorrent dreifingu.

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni