Drög að námskrám fyrir grunn- og framhaldsskóla í upplýsingatækni eru enn í vinnslu samkvæmt svari menntamálaráðuneytisins við fyrirspurn minni. Ekki er gert ráð fyrir að drögin verði birt á Netinu fyrr en í byrjun mars. Umsagnarfrestur verður framlengdur þannig að þeir sem vilja gera athugasemdir hafi til þess í það minnsta mánuð.


