Windows Defender er enn í beta útgáfu (beta 2 reyndar) sem merkir að ekki er um endanlega útgáfu að ræða heldur útgáfu sem er á lokastigi og enn í prófunum. Meðal nýjunga í útgáfunni er eftirfarandi:
- Nýtt og einfaldara notendaviðmót
- Tenging við Outlook
- Sjálfvirkar uppfærslur
Þess má geta að á vef Microsoft má einnig sækja forrit sem nefnist “Malicious Software Removal Tool”, en það getur fjarlægt yfir 50 skaðræðisforrit sem lauma sér óumbeðin inn í tölvur Netverja öllum til ama.
Ad-Aware er annað vel þekkt verkfæri sem veitir vörn gegn njósnahugbúnaði og getur, líkt og Windows Defender, einnig hreinsað til í tölvunni eftir að slíkar óværur hafa náð þar fótfestu. Ekkert er því til fyrirstöðu að setja upp bæði Windows Defender og Ad-Aware á sömu tölvunni. Þekkt er að varnarbúnaður sem þessi notar ólíkar aðferðir við að greina njósnahugbúnað og því næst betri árangur með “samvinnu”. Ad-Aware (personal útgáfuna) er hægt að sækja án endurgjalds.
Á Vísindavefnum má finna frekari upplýsingar um vírusa, trójuhesta, orma og njósnahugbúnað og hér er svo vísun í áhugaverða grein um sama viðfangsefni á Deiglunni.


