Lectopia

Skrifað 18. February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Lectopia er áhugaverð lausn sem þróuð hefur verið við Háskólann í vestur Ástralíu og tæplega 30% háskóla í Ástralíu nota til þess þess að taka upp og dreifa fyrirlestrum á Netinu. Michael Fardon, einn upphafsmanna verkefnisins, flutti mjög góðan fyrirlestur um Lectopia á Educause 2005 ráðstefnunni síðasta vetur, sem hann nefndi “Distributed Learning Utilizing On-Demand Internet-Transmitted Lectures: A Case Study”. Fyrirlesturinn er aðgengilegur á mp3 sniði auk þess sem hægt er að sækja glærurnar sem honum fylgja á Powerpoint sniði.

Í fyrirlestrinum gerir Fardon ágæta grein fyrir umfangsmikilli hagnýtingu Lectopia (upphaflega nefnt iLecture) við Háskólann í vestur Ástralíu þar sem um 360 fyrirlestrar eru teknir upp og gerðir aðgengilegir á Netinu í hverri viku. Hann fjallar um kosti kerfisins, s.s. mikla sjálfvirkni og einfaldleika í notkun, og einnig helstu ástæður nemenda fyrir notkun þess. Þá minnist hann í fyrirlestrinum á þætti eins og kostnað og kennslufræðilegar áherslur.

Hér að neðan hef ég tekið saman nokkra skemmtilega punkta sem Fardon talar um í fyrirlestri sínum og birtir eru í meðfylgjandi glærum:

  • Lausnin var m.a. þróuð vegna aukinna krafa kennara og nemenda um aðgengi að efni
  • Nemendur geta einnig notað lausnina við upptöku á eigin efni, s.s. við verkefnavinnu
  • Mikil sjálfvirkni einfaldar notkunina
  • Nemendur geta sótt fyrirlestra á mp3 spilarana sína (Podcasting)
  • Lítill rekstrarkostnaður og stofnkostnaður í lágmarki miðað við umfang (um 250.000$)
  • Samþætting við námsstjórnunarkerfi, s.s. Blackboard og WebCT
  • Gríðarleg aukning í notkun
  • Hljóðupptökur eru alls 57% upptakanna, þ.e. 199 upptökur á viku
  • Einungis 2% eru videóupptökur
  • Mikil aukning á notkun nemenda þegar fer að líða að prófum
  • 60% nemenda nota kerfið til að fara yfir námsefnið
  • 43% nemenda nota kerfið til að kynna sér betur einstaka efni eða efnisþætti
  • 38% nemenda nota kerfið vegna árekstra í töflu
  • 30% nemenda nota kerfið til að samræma vinnu og nám
  • 25% nemenda kjósa fyrirlestra á Netinu umfram hefðbundna (f2f) fyrirlestra
  • Netbundnir fyrirlestrar eru vinsælastir meðal 16 - 20 ára og 26 - 30 ára nemenda
  • Netbundnir fyrirlestrar eru vinsælir hjá nemendum sem búa langt frá skólanum
  • Netbundnir fyrirlestrar eru vinsælir meðal stúlkna
  • Netbundnir fyrirlestrar eru vinsælir hjá hinum meðalnemanda
  • Netbundnir fyrirlestrar eru óvinsælastir hjá “getumestu” nemendunum
  • Netbundnir fyrirlestrar eru óvinsælastir hjá “getuminnstu” nemendunum, þ.e. nemendum sem falla
  • Netbundnir fyrirlestrar eru óvinsælastir hjá nemendum sem eru 30 ára og eldri
  • Tímastókn hefur einungis minnkað um 5% - 10% eftir að lausnin var tekin í notkun
  • Nemendur spyrja síður endurtekinna spurninga um innihald efnissins eftir að kerfið var tekið í notkun
  • Kennarar telja að aðgengi að eigin fyrirlestrum auki möguleika þeirra á sjálfsmati
  • Kennarar telja að aðgengi að fyrirlestrum frá fyrra ári einfaldi skipulagningu á áföngum

Ég hvet alla þá sem hafa áhuga á því að kynna sér möguleika hugbúnaðarlausna eins og Lectopia við upptöku og miðlun fyrirlestra að kynna sér þróunarstarfið innan Háskólans í vestur Ástralíu.

Hér má finna frekari upplýsingar um Lectopia.

Technorati Tags: , ,


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni